virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil í kjölfarið á því sem kom fram í ræðu hv. þm. Kristrúnar Frostadóttur vekja athygli á því að í ljósi þess að þetta frumvarp felur í sér húsnæðisstuðning í formi skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði þá erum við hér með breytingartillögu um að veittur verði annars konar stuðningur sem er sérstaklega til þess fallinn að renna til heimila sem eru í senn tekjulág og eru að glíma við þunga greiðslubyrði vegna hækkandi vaxtastigs, þ.e. að greiddur verði út sérstakur vaxtabótaauki nú í sumar sem er bæði eigna- og tekjutengdur. Þetta er að fullu fjármagnað með hækkun á skatthlutfalli fjármagnstekjuskatts, sem einnig er lögð til í þessari breytingartillögu og er skattahækkun sem leggst nær einvörðungu á tekjuhæstu 10% skattgreiðenda vegna þeirra frítekjumarka sem eru í kerfinu. Auk þess mælti hv. þm. Kristrún Frostadóttir hér áðan fyrir sérstakri ívilnun vegna nýbyggingar á almennum íbúðum, sem ég skora eindregið á þingheim að samþykkja.