virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegur forseti. Ég lagði fram breytingartillögu um með hvaða hætti væri hægt að ráðstafa greiðslu séreignar inn á íbúðalán sem snýr að því að fólki sé heimilt að ráðstafa þessum fjármunum inn í afborgunina, ekki bara inn á höfuðstól. Það skiptir máli við þessar aðstæður, þar sem afborgunarbyrði lána hefur hækkað mjög mikið, að styðja við þá hópa sem þurfa að takast á við mikla verðbólgu. Þetta er í raun og veru líka bara frelsismál, að heimila fólki að ráðstafa sinni eign eins og það kýs, ekki að við séum alltaf að stjórna því á hvaða hátt fólk fær að ráðstafa þessum fjármunum. Ég óska þess innilega að þessi tillaga fái framgang af því að þetta skiptir máli. Ef þetta fer inn á höfuðstól þá eru þetta nokkrir hundraðkallar á mánuði sem þetta munar um. En ef þetta fer inn á afborgunina þá gætum við verið að tala um 40.000 miðað við 500 þúsund kall á mánuði eða 60 þúsund kall hjá hjónum. Þetta skiptir máli þegar afborgun hefur kannski hækkað um 100.000 eða 200.000, eins og maður hefur sums staðar heyrt, að fólk geti þá fengið þennan 60 þúsund kall inn í afborgunina.