Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 123. fundur,  9. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[19:15]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Með samþykkt þessa frumvarps mætum við örorku- og ellilífeyrisþegum með mikilvægum kjarabótum nú á miðju ári, sem vissulega er ekki venjan, en það er jákvætt. Hækkuninni er ætlað að koma í veg fyrir kaupmáttarrýrnun þessara hópa síðar á árinu þar sem verðbólga er meiri en gert var ráð fyrir í forsendum fjárlaga ársins í ár. Þessi 2,5% hækkun sem hér er lögð til kemur til viðbótar hækkun um 7,4% um síðustu áramót og er mikilvægur liður í að mæta þeim hópum sem kröppust hafa kjörin við núverandi efnahagsaðstæður. Ég vil fá að þakka hv. velferðarnefnd fyrir góða og snarpa vinnu í þessu máli og gleðst með þingheimi því að ég veit að hann mun allur samþykkja þetta mál.