Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 123. fundur,  9. júní 2023.

breyting á ýmsum lögum til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.

1156. mál
[19:19]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Ég skil þær áhyggjur sem hafa verið reifaðar í sambandi við það að við mættum eiga von á einhverri holskeflu frá dómurum og æðstu ráðamönnum og saksóknurum í sambandi við það að við erum að ganga inn á þeirra launakjör. En það breytir ekki þeirri staðreynd að það væri enginn bragur á því að við reyndum ekki að ganga í takt, að efsta lagið í samfélaginu reyndi ekki að ganga í takt og sýna það í verki að við viljum í rauninni koma til móts við það ástand sem er í samfélaginu og skiljum það af öllu hjarta. Þannig að við skulum þá sjá til hvort hluti af þessu efsta lagi fellir grímuna og sýnir að það vilji ekki taka þátt í samfélaginu með okkur og hjálpa til. Flokkur fólksins var hins vegar með tillögu um það að við myndum ekki þiggja eina einustu krónu á meðan við erum að ganga í gegnum þessa erfiðleika, hvort sem það væri um næstu áramót eða eftir eitt ár eða tvö ár. Þessi frábæra ríkisstjórn ætlar nú að laga hlutina bara einn, tveir og þrír, þannig að það hefði þá kannski þurft að bíða lengi. En við hefðum átt að bíða með hverja einustu krónu fyrir allt þetta efsta lag. (Gripið fram í.) En við segjum já, að sjálfsögðu, og styðjum þetta.