153. löggjafarþing — 123. fundur,  9. júní 2023.

þingfrestun.

[19:23]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Hv. alþingismenn. Komið er að lokum þingfunda og þessu löggjafarþingi, sem er hið 153. í röðinni, verður brátt frestað, eins og starfsáætlun segir til um. Þinghald hófst með hefðbundnum hætti og á tilskildum tíma síðastliðið haust og að þessu sinni hafa hvorki farsóttir né aðrir óvæntra atburðir utan þings haft áhrif á störfin, eins og hefur verið raunin á nokkrum undanförnum þingum. Það er ánægjulegt að geta greint frá því við þinglok að þingstörfin gengu almennt greiðlega og ekkert hefur verið því til hindrunar að Alþingi rækti hið mikilvæga hlutverk sitt. Fundir hér í þingsalnum urðu 123 og 82 lög voru samþykkt. Þar af eru 75 stjórnarfrumvörp, fimm nefndarfrumvörp og tvö þingmannafrumvörp.

Stefnt er að því á komandi hausti að taka í notkun nýbyggingu sem hefur verið að rísa hér á Alþingisreitnum. Þar munu þingmenn og þingflokkar fá betri og haganlegri starfsaðstöðu en þeim hefur boðist hingað til og starfsfólk Alþingis einnig. Það er að mínu mati tilhlökkunarefni að eiga þau tímamót í vændum að sjá starfsemi þingsins loksins í hagkvæmu húsnæði sem sniðið er að þörfum þess. Það mun alveg áreiðanlega stuðla að aukinni skilvirkni í þeim margþættu störfum sem hér eru unnin. Eins og verða vill þegar tekist er á um málefni lands og þjóðar þá kom það fyrir að vetrarstormar næddu hér um þingsalina og sumar ræðurnar lengdust nokkuð í annan endann þegar svo bar undir, en í meginatriðum gekk þó samstarf þingmanna vel og þinghaldið einnig. Fyrir það vil ég þakka þingmönnum öllum en alveg sérstaklega formönnum þingflokka sem lögðu sig sérstaklega fram við að leysa úr málum svo unnt yrði að ljúka þingstörfum samkvæmt starfsáætlun, sem og varaforsetum sem stóðu vaktina við fundarstjórn.

Ég vil að lokum þakka skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki skrifstofu Alþingis góða samvinnu og vel unnin störf við þinghaldið sem nú er senn á enda. Að lokum óska ég þingmönnum öllum og starfsliði þingsins allra heilla og velfarnaðarósk um að við hittumst heil við þingsetningu á komandi hausti.