154. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2023.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:17]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Kæru áheyrendur. Það er ákveðið leikrit í gangi. Leikrit sem við getum kallað: Hin stórkostlegu lífskjör almennings á Íslandi. Í leikritinu er því haldið fram að hvergi séu lífskjörin jafn góð og hér, að mesti jöfnuðurinn sé á Íslandi, að við búum í sterku velferðarríki jafnra tækifæra, að launin séu hæst á Íslandi og það sé bara frekar ódýrt að versla í matinn hérna, að verðbólga sé bara tímabundin boðflenna sem fer alveg að fara og kemur örugglega aldrei aftur vegna þess að íslenska krónan er frábær gjaldmiðill sem þarf bara smá stöðugleika og styrka hendi Sjálfstæðisflokksins til að jafna sig. Vondu karlarnir í þessu leikriti eru vanþakkláta launafólkið sem skilur ekki hvað það hefur það ógeðslega gott, þykist ekki sjá veisluna og heimtar enn þá hærri laun. Það er frekjunni í þeim að kenna að Seðlabankinn neyðist til að hækka stýrivexti 14 sinnum í röð.

Þetta leikrit glymur sífellu í eyrum okkar héðan úr þessum ræðustól, rétt í þessu, í fjölmiðlum og hvar sem hægt er að troða því að. Leikararnir koma víðs vegar að úr samfélaginu og styrktaraðilarnir eru fjársterkir og voldugir viðskiptamenn. Samtök atvinnulífsins tilnefna handritshöfunda og SFS hafa átt nokkra góða leikstjóra líka. Og það veitir sannarlega ekki af öflugum styrktaraðilum því það kostar talsverða orku og peninga að sannfæra okkur hin um að leikritið sé enginn skáldskapur heldur hinn eini sanni veruleiki okkar allra og hver sá sem öðru heldur fram sé annaðhvort vanþakklátur vitleysingur eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson, nú eða öfundsjúkur öfgamaður sem vilji ýta undir pólaríseringu í samfélaginu.

En ef við skyggnumst á bak við tjöldin á þessari rándýru leiksýningu blasir raunveruleikinn við. Ísland er eitt dýrasta land í heimi og þó að launin hér á landi séu vissulega há er launakostnaður íslenskra fyrirtækja ekki hár í alþjóðlegum samanburði. Reyndar er hagnaðarhlutfall fyrirtækjanna hér á landi svo hátt að flest bendir til þess að þrálát verðbólga sé alls ekki af völdum freka launafólksins heldur vegna ofsafenginna verðhækkana fyrirtækja sem gengu á lagið í Covid og hækkuðu verð langt umfram það sem nauðsynlegt er og halda því áfram. Við sjáum líka að misskipting auðs á Íslandi fer ört vaxandi. Kaupmáttur almennings rýrnar jafnt og þétt og hlutfall þeirra sem eiga erfitt með að ná endum saman er að nálgast um helming þjóðarinnar. Tæplega 50.000 manneskjur á Íslandi búa við fátækt á meðan ríkustu 10% landsmanna auka hreina eign sína um hundruð milljarða á hverju ári í skjóli fákeppni og lágra fjármagnstekjuskatta.

Ísland er nefnilega velferðarríki fyrir fjármagnseigendur. Hvar annars staðar en á Íslandi fengi Samherji, sem græddi 14,3 milljarða í fyrra á nýtingu á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, líka 110 millj. kr. gjöf frá sömu skattgreiðendum til að skipta um vél í einum bát?

Forseti. Þegar áhorfendum fer að leiðast gamla sjóið og fara að sjá í gegnum plottið er alltaf hægt að búa til smá drama. Það er hægt að rífast um kvalafull dráp á hvölum, það er hægt að nöldra aðeins um virkjanir og henda bjargarlausu flóttafólki á götuna. Drama — allt til þess að breiða yfir það að ríkisstjórnin strandaði á eigin stefnuleysi, að formennirnir eru komnir í björgunarbátana og róa sitt í hvora áttina, allt til þess að fela það að ríkisstjórnin átti sjálf stóran þátt í að skapa verðbólguna með því að eyða fúlgum fjár í að auka eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði en gera lítið sem ekkert til að auka framboðið. Allt til þess að breiða yfir það að ríkisstjórnin hefur nákvæmlega ekkert brugðist við þeim gríðarlegu áhrifum sem sprenging í komu ferðafólks hefur haft á húsnæðismarkaðinn og verðlagið í landinu. Allt er þetta drama til að sannfæra okkur um að almenningur eigi að samþykkja hækkandi vaxtakostnað og vöruverð með bros á vör og þakka fyrir og passa að biðja alls ekki um meiri peninga af því að þá verður þetta bara enn þá verra. Allt er þetta drama til að sannfæra okkur um það, sannfæra almenning um að það megi alls ekki hækka skatta á þá sem eru að mokgræða á þessum sama almenningi, það megi alls ekki skattleggja þau sem í raun keyra áfram keyrsluna og viðhalda verðbólgunni því fyrst þá myndi það slá samkeppnishæfni Íslands algerlega út af borðinu, syngja þau í kór.

Samkeppni, já, það er nú eitt. Í þessu leikriti er nefnilega frjáls markaður á Íslandi með öflugri og heilbrigðri samkeppni sem tryggir hag neytenda. Samkeppniseftirlitið er svo í liði með vanþakkláta launafólkinu, vonda fólkinu, vonda karlinum í þessu leikriti. Það er einn helsti óvinur hins óskeikula heilaga markaðar og þarf að hverfa enda þvælist það bara fyrir góðu strákunum sem þurfa að græða á daginn og sigla burt með gámafylli af peningunum okkar á kvöldin. Einhvers staðar þurfa peningarnir jú að vera.

Forseti. Þetta er orðið mjög þreytt leikrit. Drögum tjöldin frá og loftum út.