154. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2023.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:29]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er gott að vera komin aftur til starfa á Alþingi. Sumarið var, eins og alþjóð veit, afhjúpandi fyrir ríkisstjórnina og veikleika hennar. Hver ráðherrann situr nú í sínu horni og spilar á sitt hljóðfæri. Vanalega væri það ekki vandamál fyrir utan að þau eru ekki að spila sama lagið og það er hvorki taktfast né áhrifaríkt. Það er ekki trúverðugt eða grípandi og það er ekki óskalag þjóðarinnar.

Sú óvenjulega staða er sem sagt komin upp að stjórnarandstaðan þarf ekki að eyða púðri í að skjóta á ríkisstjórnina sem hefur málefnalega runnið sitt skeið. Stjórnarliðar sjá um það sjálfir. Þetta er auðvitað dæmalaust, en gefur okkur tækifæri til að ræða grundvallarhugmyndir og hver helstu verkefni næstu ríkisstjórnar verða.

Ég hef sterka sannfæringu fyrir því að hugmyndafræðin á miðju stjórnmálanna þurfi að koma öflugri inn á Alþingi eftir næstu kosningar til að treysta betur efnahagslegan, félagslegan og pólitískan stöðugleika. Viðreisn mun áfram byggja á þeim frjálslyndu víðsýnu hugmyndum sem lagðar voru til grundvallar við stofnun flokksins. Ég er að tala um jafnvægið milli athafnafrelsis og velferðar og mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu, til að treysta öryggi landsins, auka efnahagslega grósku og skapa jöfn tækifæri.

Stundum heyri ég að stjórnmálabaráttan eigi bara að snúast um þá hluti sem má kippa strax í liðinn og lítið annað. En mannlegt samfélag og búskapur heillar þjóðar krefst miklu meira af stjórnmálunum, að þau hugsi um raunhæfar lausnir sem lifa. Þótt eitthvað taki tíma, jafnvel meira en eitt kjörtímabil, þýðir það ekki að það eigi ekki að byrja. Brýning Þorsteins Erlingssonar er sígild:

Því sá, sem hræðist fjallið og einlægt aftur snýr,

fær aldrei leyst þá gátu, hvað hinum megin býr.

Byrjum á því að spyrja okkur sjálf grundvallarspurninga: Er það land jafnra tækifæra að bóndi borgi þrefalt hærri vexti af nýja fjósinu en útgerðarmaður af nýja frystihúsinu? Er það land jafnra tækifæra að starfsfólk á hótelinu borgi þrefalt hærri vexti af nýju íbúðinni sinni en eigandi hótelsins af nýju hótelbyggingunni. Og er það land jafnra tækifæra að kynslóð eftir kynslóð horfi á sparnaðinn hverfa og eignir rýrna?

Þessi mismunur er afleiðing þess að við búum í tvískiptu peningahagkerfi; þau sem eru nauðbeygð til að nota krónuna og svo hin sem gera upp í erlendri mynt. Við eigum að tryggja öllum jafnan aðgang að hagstæðum gjaldmiðli, ekki bara sumum. Þau sem hafna því að rétta hlut borgaranna og litlu og meðalstóru fyrirtækjanna eru í raun að segja að þau vilji ekki jafna leikinn.

Og eigum við að ræða stöðu ríkissjóðs? Yfirgengilegur kostnaður vegna skulda ríkisins þrengir ekki síst að velferðarkerfinu — 110 milljarðar á næsta ári, hugsið ykkur hvað við gætum gert fyrir slíka fjármuni. Flokkarnir lengst til hægri loka augunum fyrir þessum vanda. Vinstri flokkarnir sjá ekki aðra lausn en að hækka skatta. Höfum í huga að við erum nú þegar í hópi þeirra þjóða sem greiða hvað mest í skatta.

Ríkisstjórnin hefur síðan lítið annað gert en að færa fjármagnseigendum feitari bita í formi hærri vaxta í stað þess að ráðast að rótum vandans, lækka vaxtabyrði ríkisins og skapa þannig nauðsynlegt svigrúm fyrir velferðarkerfið. Við verðum að snúa þessu við þótt það taki tíma. Auðvitað eigum við líka að nota vannýtta tekjustofna líkt og auðlindagjöld til að lækka álögur á almenning og fjármagna brýn verkefni. Skárra væri það nú.

Verkefnalisti næstu ríkisstjórnar er að lengjast, enda skilar þessi ríkisstjórn auðu á flestum sviðum. Ný ríkisstjórn verður að vera tilbúin með markvissa áætlun til að ná markmiðum um orkuskipti og grænan hagvöxt. Hún þarf að ryðja brautir og leysa fjötra með frjálslyndri hugmyndafræði á miðju stjórnmálanna, án skyndilausna og með alvöruframtíðarsýn. Ljóst er að þessi ríkisstjórn getur ekki leyst þetta, hægagangur og stöðnun í orkuöflun síðustu sex ár staðfestir það.

Ný ríkisstjórn verður að tækla húsnæðismálin strax. Við verðum að komast út úr átaksverkefnum og inn á braut fyrirsjáanleika og jafnvægis á milli framboðs og eftirspurnar. Þjóðin á skilið stöðugleika á lána- og húsnæðismarkaði eins og nágrannaþjóðir okkar, en til þess þurfum við m.a. nýjan gjaldmiðil. Almenningur á ekki að þurfa að greiða húsnæði sitt upp þrisvar sinnum.

Ný ríkisstjórn þarf að tryggja heilbrigðan samkeppnismarkað sem neytendur hafa hag af. Við sjáum m.a. nýleg dæmi um samráð sem sýna sannarlega þörfina á að opna stærstu höfn landsins fyrir meiri samkeppni. Jöfn samkeppnisskilyrði eru forsenda fyrir heilbrigðum og frjálsum markaði, en þegar leikreglurnar eru ekki þær sömu þá ræður aðstöðumunurinn úrslitum en ekki hæfnin og á því tapa neytendur. Það er óréttlæti sem okkur ber að taka á.

Afstaða okkar í Viðreisn er skýr: Við teljum m.a. að aðild að Evrópusambandinu myndi auðvelda okkur að ná þessum markmiðum um að tryggja hér jöfn tækifæri og samkeppni. Á endanum er aðild eitt stærsta velferðarmálið. Viðreisn vill leggja það í dóm þjóðarinnar hvort eigi að ljúka þeirri vegferð. Í glænýrri könnun frá Maskínu kom í ljós að ríflegur meiri hluti þjóðarinnar vill fá að kjósa um framhaldið en aðeins 19% eru því andvíg. Viðreisn vill ekki leyfa Brexit-sinnum þessa lands að ráða heldur þjóðinni sjálfri. Þjóðin á að ráða þessu og ég spyr: Af hverju ekki?

Ágætu landsmenn. Ég hef dregið fram nokkur grundvallaratriði sem öll snerta lífsgæði þjóðarinnar, á sviði velferðar- og skattamála, orku- og loftslagsverndar, stöðugleika á húsnæðismarkaði og jafnra samkeppnisskilyrða. Og við skulum ekki gleyma fjölskyldunum þar sem afborganir hafa hækkað á 45 millj. kr. láni úr 190.000 kr. í 400.000 kr., eða fólkinu okkar sem situr uppi með dýrustu matarkörfu í heimi og nauðsynjar sem hafa hækkað um 40–60% á einu ári. Gleymum heldur ekki dæmalausri fákeppni á banka-, trygginga- og flutningamarkaði, því að á endanum er það alltaf almenningur sem borgar brúsann. Allar þessar séríslensku brotalamir birtast okkur aftur og aftur, með tilheyrandi tjóni fyrir íslenskt samfélag. Samt yppta gömlu flokkarnir bara öxlum og grámyglan heldur áfram og varðstaðan um kyrrstöðu og óréttlæti líka.

En þetta þarf ekki að vera svona, kæru landsmenn. Viðreisn er tilbúin í samtalið. Við erum tilbúin í málamiðlanir, en Viðreisn var ekki stofnuð til þess að láta aðra flokka eða skuggaráðgjafa þeirra taka mál af dagskrá. Brýning Þorsteins Erlingssonar getur verið okkar leiðarstef. Við verðum að þora að klífa fjallið til að sjá hvað leynist hinum megin.