Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Herra forseti. Góðir landsmenn. Þetta er nú meira ástandið. Eftir sex ár sitjum við enn uppi með ríkisstjórn sem var eingöngu mynduð um það að fólk gæti verið saman í ríkisstjórn og gengið á sterka stöðu ríkissjóðs á þeim tíma. Afleiðingarnar af þessari óhemju dýru pólitísku tilraun koma betur í ljós með hverjum mánuðinum og raunar hverri vikunni þessa dagana. Síðasta vor var þingið sent heim svo að stjórnin gæti ráðið ráðum sínum í sumar og nú við þingsetningu sáum við hvað kom út úr því. Ekki neitt.
Eftir stendur að flokkarnir eru til í að fórna öllu fyrir stjórnarsetu en engu fyrir stefnu sína og kosningaloforð. Gömlu vandræðamálin dúkka upp hvert af öðru, sum samfélagslega vafasöm, sum efnahagslegt óráð og sum ganga gegn fullveldi og sjálfsákvörðunarrétti landsins. Fjárlög eru kynnt á þann hátt að ríkisstjórnin hafi dottið í lukkupottinn því að ferðamenn og landsmenn að kaupa í kappi við verðbólguna hafi skilað svo miklum aukasköttum. En stjórnin ætli ekki að eyða öllum þessum peningum, bara hluta af þeim og það er kynnt sem aðhald. Um leið er kynnt nýtt Íslandsmet í ríkisútgjöldum og áframhaldandi hallarekstur. Á meðan eru skuldirnar orðnar svo miklar að það þarf að borga 90 milljarða bara í vexti. Það er u.þ.b. milljón krónur á hvert heimili að meðaltali, bara í vexti ríkisins. Það er álíka mikið og fer í öll samgöngumál, húsnæðisstuðning og löggæslu til samans. Næsta ríkisstjórn á víst að greiða niður skuldirnar nema hún verði svipuð og þessi, þá er það væntanlega þarnæsta ríkisstjórn.
Báknið stækkar og stækkar en ríkisstjórnin státar sig af því hvað henni hafi tekist að auka útgjöld til heilbrigðismála eða um þriðjung. Samt er heilbrigðiskerfið verr statt en þegar stjórnin tók við og biðlistarnir lengri.
Hvernig er hægt að eyða svona miklum peningum með svona litlum árangri? Það er vegna þess að ríkisstjórnin hugar aldrei að innihaldinu. Það er ekkert gert til að laga kerfin sjálf. Þess í stað er meiri peningum mokað í óleystan vanda og sjúklingar sendir til útlanda í þrefalt eða sexfalt dýrari aðgerðir en hér í stað þess að bæta kerfið hérna.
Þegar ríkisstjórnin tók við var Ísland land tækifæranna. Sumum þeirra hefur verið glutrað niður, önnur ekki nýtt. Það skiptir nefnilega máli hverjir stjórna og það er ekki bara best að kjósa þá sem vilja vera í ríkisstjórn, bara til að vera í ríkisstjórn.
En ætli ég segi þetta ekki gott af umræðu um ríkisstjórnina. Það er nefnilega þess virði að velta fyrir sér hvernig samfélagið hefði getað verið og gæti orðið með annars konar stjórnarfari. Við gætum hafa notað einstakt tækifæri sem gafst til að endurskipuleggja fjármálakerfið og koma á kerfi sem virkar betur fyrir almenning og fyrirtækin en það sem við búum við nú, auk þess t.d. að skila eignarhlut í ríkisbanka beint til eigendanna til jafns, til almennings í landinu. Það hefði verið hægt að innleiða hér húsnæðisstefna sem virkar — þá dettur mér í hug húsnæðisstefna Miðflokksins — og stuðla að því að fólk geti á ný eignast eigið húsnæði fremur en að hverfa alfarið frá séreignarstefnunni. Það hefði mátt haga ríkisfjármálunum þannig að verðbólga og þar með vextir séu ekki fóðraðir af gríðarlegum ríkisútgjöldum og síhækkandi gjaldtöku og öðrum álögum ríkisins. Við værum núna u.þ.b. eða gætum verið að opna stórglæsilegt og nútímalegt þjóðarsjúkrahús við Vífilsstaði eða í Keldnalandi fremur en að horfa upp á steinsteypustabbana sem skyggja á Landspítalann og raunar miðbæinn allan. Við gætum haft heilbrigðiskerfi sem virkar eins og Birni Zoëga tókst að skapa með endurskipulagningu kerfisins á Karólínska sjúkrahúsinu.
Það sama á við um menntakerfið. Nú gætu stórir árgangar iðnnema verið að útskrifast, fólk sem í hundraðavís fékk ekki skólavist en gæti nú verið að hefja verðmætasköpun fyrir fjölskyldur sínar og samfélagið. Bændur sem halda uppi byggð, framleiðslu fyrir okkur á mat, spara gjaldeyri og tryggja öryggi samfélagsins gætu fjárfest og unnið sín störf í vissu þess að stjórnvöld stæðu með greininni í stað þess að finna stöðugt upp nýjar leiðir til að gera bændum lífið leitt. Og við gætum verið að nýta meira af hinni óbeisluðu umhverfisvænu orku til að standa undir orkuskiptum og nýrri framleiðslu, nokkuð sem er ekki í boði nú. Við gætum jafnvel verið að leita að orkunni sem heimurinn þarf og má ekki nefna. Ég hef fulla trú á því að íslenska gasið sé best. Við gætum staðið vörð um fullveldi landsins og yfirráð okkar yfir orkumálum og gjaldtöku. Við gætum innleitt hvetjandi stefnu sem fær Ísland allt til að virka sem eina öfluga heild. Sú stefna er til og þið vitið hvar.
Í samgöngumálum gætum við ráðast í hagkvæmar og mikilvægar framkvæmdir sem hafa beðið von úr viti í stað þess að ráðherrar leyfi borgarstjórn Reykjavíkur að ráða för og rukki svo alla landsmenn fyrir gæluverkefni Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Loks gætum við lært af reynslu annarra Norðurlanda og raunar Evrópu allrar og náð stjórn á landamærunum og hælisleitendamálum, hjálpað fleirum í raunverulegri neyð víða um lönd í stað þess að ýta undir stjórnleysi og setja samfélagið allt úr skorðum. Um leið gætum við rétt hlut íslenskra lífeyrisþega og annarra sem hallar á hér á landi.
Sé þetta allt gert af skynsemi þá gætum við um leið greitt niður skuldir svo ekki stór hluti af tekjum íslensks almennings renna í það að greiða vexti ríkisins.
Ótal margt fleira mætti nefna og þið vitið hvað þarf til að hlutirnir breytist. Því hvet ég forystufólk stjórnarflokkanna til að frelsa flokkana sína svo þeir geti fundið sjálfa sig á ný. Það er komið nóg af þessari óheillatilraun.