154. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2023.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[21:07]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Kæra fólk. Undanfarin tvö ár höfum við Píratar átt fullt í fangi með að koma í veg fyrir skaða sem þessi ríkisstjórn hefur gert tilraunir til að valda á okkar friðsæla og góða samfélagi, stundum meiri árangri en ég óttaðist. Allur sá tími og sú ómælda orka sem farið hefur í það hjá okkur Pírötum á síðustu misserum hefur torveldað okkur að teikna upp mynd af því samfélagi sem við viljum sjá, í stað þess bara að koma í veg fyrir það samfélag sem við viljum ekki sjá.

Hvað skapar gott samfélag? Við hér í þessum sal getum tekist á um einstaka skattprósentur, styrki til tannréttinga eða sameiningu framhaldsskóla, en á endanum skiptir það allt litlu máli ef við vanrækjum tvær grunnstoðir góðs samfélags: Frelsi og öryggi. Öll viljum við fyrst og fremst vera örugg og frjáls.

Öryggi snýst að miklu leyti um að geta lifað lífi án ofbeldis í víðum skilningi og að þurfa ekki að þola ógn um slíkt, öryggi gegn hvers kyns þvingunum og innrásum í líf okkar. Það er ekki vopnuð lögregla sem skapar öruggt samfélag. Það gera öryggismyndavélar á hverju húshorni ekki heldur. Öruggt samfélag verður til þegar fólk sér aðrar leiðir til að leysa vandamál en með ofbeldi og kemur fram við hvert annað af virðingu og samkennd. Öruggt samfélag fæst með því að tryggja að fólk, allt fólk, búi við lífsskilyrði sem etja þeim ekki út í örbirgð og örvæntingu.

Ísland er eitt ríkasta land í heimi. Það er pólitísk ákvörðun að hér búi fólk við fátækt með öllum þeim alvarlegu andlegu, líkamlegu og félagslegu afleiðingum sem henni fylgja fyrir einstaklingana sjálfa og fyrir okkar samfélag. Fátækt fólk býr hvorki við öryggi né frelsi. En hvað er frelsi? Frelsi felst í því að fá að njóta mannréttinda til jafns við annað fólk. Frelsi undan stöðugu eftirliti stóra bróður. Frelsi einstaklingsins til að ráða eigin lífi og líkama, leita hamingjunnar á eigin forsendum.

Katrín Jakobsdóttir, leiðtogi ríkisstjórnarinnar, sagði okkur rétt í þessu að hún væri ekki aðdáandi þeirra stjórnmálamanna sem telja deilur sér til tekna fremur en sátt og samvinnu. Hún tengir þá stjórnmálamenn við skautun og popúlisma en segist sjálf vilja leita sátta og byggja brýr á milli ólíkra póla í samfélaginu. Skautun er hins vegar ekki bara vandamál stjórnmálanna, heldur eitt alvarlegasta vandamálið sem samfélag okkar hér á Íslandi stendur frammi fyrir og víðar og þar er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur stór gerandi. Hvað er það annað en skautun samfélagsins þegar ráðherrar nota hvert tækifæri til að stilla flóttafólki upp sem ógn við velferðarríkið? Hvað er það annað en skautun samfélagsins að henda varnarlausu fólki á götuna? Og sjáið enda afleiðingarnar af því. Réttlætiskennd annars pólsins er svo gróflega misboðið, en það hlakkar í hinum sem fær byr undir báða vængi fordóma sinna og haturs.

Breytingar á lögum um útlendinga verður fyrsta mál okkar Pírata á þessum þingvetri þar sem við viljum afnema þá þjónustusviptingu sem nú hefur raungerst. Ríkisstjórnin setur í staðinn frelsissviptingu á sína þingmálaskrá. Þessi ríkisstjórn boðar frelsi fyrir alla, en bara ef þeir eru ríkir og fæddir á Íslandi. Flóttafólk er hvorugt og þess vegna ætlar þessi ríkisstjórn að ræna það frelsinu og í staðinn að bjóða falskt öryggi með nýju fangelsi.

Helsta ógnin við öryggi okkar og frelsi hér á Íslandi er ekki útlendingar. Það eru ekki vímuefnaneytendur eða fólk sem glímir við hvers konar veikindi. Ekki hinsegin fólk. Og ekki er það fagfólk á vegum sveitarfélaganna sem kennir börnum að þekkja og vernda það sem stendur okkur næst; líkamann okkar.

Það eru þeir aðilar sem hatast út í þessa hópa sem okkur stafar raunveruleg ógn af. Þessa þróun þarf ekki bara að stöðva. Henni þarf að snúa við. Og það gerum við ekki með vopnaburði. Það gerum við með opnu samtali og fræðslu og með samfélagssáttmála þar sem enginn þarf að óttast um afkomu sína. Það gerum við með því að setja aftur á dagskrá aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu, sem er því miður ekki lengur á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Þess í stað fá fordómar gegn hinsegin fólki og útlendingum að grassera með alvarlegum afleiðingum fyrir öryggi og frelsi í þessu samfélagi.

Forseti. Það væri þinginu til sóma að sameinast um að tryggja mannréttindi og frelsi, raunverulegt frelsi fólks, alls fólks. Þá fyrst búum við í öruggu samfélagi.