fjárlög 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna. Það eru þrjú atriði sem mig langar til að spyrja út í hér í fyrra andsvari mínu. Ég missti reyndar af sirka tveimur mínútum af ræðu hæstv. ráðherra þannig að mögulega kom það fram þar, en það kom ekki fram að mér sýndist í kynningu ráðherra og það kom ekki fram í framsögu ráðherra við fjárlög í fyrra, en mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Hver eru heildarútgjöld ríkissjóðs á næsta ári samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi?
Í öðru lagi þá langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra, í ljósi þess að það hefur auðvitað verið mikið rætt hér í umræðum í gær og blasir við að það tengist fjárlögunum, um áhrif kjarasamninga á nýju ári. Nú liggur fyrir að hæstv. félagsmálaráðherra ætlar sér ekki að leggja fram breytingu á lögum um ríkissáttasemjara fyrr en á nýju ári. Mig langar til þess að spyrja um afstöðu hæstv. fjármálaráðherra til þessa og hvort það sé skynsamlegt að bíða svo lengi með að styrkja stöðu og regluumhverfi ríkissáttasemjara í því samhengi að festa geti verið í þeim samningaviðræðum sem fram undan eru.
Í þriðja lagi langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvort það fari fram einhver greining í fjármálaráðuneytinu í tengslum við vinnu fjárlaga á áhrifum annarrar löggjafar. Ég vil bara taka lítið dæmi. Nú liggur fyrir í þingmálaskrá, frá hæstv. utanríkisráðherra, að það á að innleiða þann hluta Fit for 55, umhverfispakka Evrópusambandsins, sem snýr að siglingum. Það hefur komið fram í fjölmiðlum að ekki var óskað eftir undanþágu þó að beinlínis sé gert ráð fyrir þeim í regluverkinu. Skipafélögin hafa sagt að það verði 5–6 milljarða viðbótarkostnaður vegna þess. Sá kostnaður lendir auðvitað á heimilunum með beinum hætti á endanum. Þetta eru 35% af aðhaldstillögunum sem fjármálaráðherra leggur til, 17 milljörðunum, þannig að áhrifin eru svo fljót að koma fram af svona breytingum sem fá kannski ekki nægilega mikla athygli hvað mat á heildaráhrifum aðgerða ríkisstjórnarinnar varðar.