154. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[15:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að partur af vandamálinu sé að það var búið að krukka svo mikið í hinu upphaflega frumvarpi sem þáverandi dómsmálaráðherra, Sigríður Á. Andersen, lagði fram og var vatnað út jafnt og þétt í gegnum ein fjögur eða fimm þing, það sé hluti af því af hverju skilvirknin er með þeim hætti sem hv. þingmaður lýsir. Ég dreg hreinlega ekkert í efa að staðan akkúrat núna sé sú að ákveðnir hlutar ferlisins séu torveldari og tyrfnari heldur en áður var og ég held að það sé af því að við erum ekki að nálgast þetta heildstætt.

Hv. þingmaður nefndi töluna 6 milljarða sem fóru til málaflokksins fyrir örskömmu síðan og nú eru það 15. Ég held að við gætum nýtt þessa peninga miklu betur til að styðja við fólk. Ég sé fyrir mér að það ætti að gerast með því að við notuðum með miklu ákveðnari hætti kvótaflóttamannakerfið sem hefur auðvitað verið viðvarandi lengi og er ágætisreynsla af. Við settum þess í stað hluta þessara fjármuna í að styðja við fólk á nærsvæðum sínum sem eru á flótta undan ýmiss konar óáran. Þannig að ég held að við gætum raunverulega verið að hjálpa fleirum fyrir minni pening en við erum að gera í kerfinu eins og það er í dag. Ég held að það hafi verið skaði af því að frumvarpið var vatnað svona út í gegnum þessi fjögur, fimm þing sem það var til meðferðar á og það er örugglega eitthvað, eins og hv. þingmaður segir, sem orsakar að ýmsir hlutir ferlana séu tyrfnari í dag en var áður. Það getur ekki verið markmiðið. Markmiðið hlýtur að vera að geta gert mest fyrir þá sem við bjóðum hingað og stutt mögulega við aðra á nærsvæðum sínum (Forseti hringir.) fyrir hóflegri fjármuni heldur en núna er því að 15 milljarðar — mér finnst það mjög há tala í þessu samhengi (Forseti hringir.) af því það er ekki verið að hjálpa fólki sérstaklega vel með þessari upphæð.