154. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[16:17]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Enn einu sinni erum við að fara að ræða frumvarp til fjárlaga. Fjárlögin fyrir 2024 eru enn einu sinni útþynnt, mjög útþynnt naglasúpa fyrir þá verst settu en rjómalöguð gróðavæn gæðasúpa fyrir þá ríku. Það er alveg með ólíkindum hvernig þessari ríkisstjórn hefur tekist ár eftir ár að skilja þá verst settu eftir. Kannski þarf maður ekkert að vera hissa á því vegna þess að verkin tala og sýna fram á það að þessi ríkisstjórn mun ekki og ætlar ekki að sjá til þess að réttlæti þeirra fátækustu og þeirra tími sé kominn.

Manni getur stundum blöskrað hvernig umræðan getur orðið um t.d. málefni fatlaðra. Ég ætla að taka það upp vegna þess að í þessum doðranti er ekkert tekið á því deilumáli sem hefur verið á milli borgar og fjármálaráðherra um málefni fatlaðs fólks. Það hlýtur að vera eitthvað stórfurðulegt þegar borgarstjóri Reykjavíkurborgar segir um málaflokk fatlaðs fólks að halli á fjármálum borgarinnar sé því að kenna. Já, að óráðsía og framúrkeyrsla borgarinnar sé fötluðu fólki að kenna, heill 4,8 milljarða halli. Allt væri jákvætt hjá þeim í borginni upp á 3,8 milljarða ef málaflokkurinn væri fullfjármagnaður af ríkinu. Hæstv. fjármálaráðherra blandar sér í þessa umræðu um þennan útgjaldalið en gerir það ekki í fjárlögunum. Hann ætlar ekki að sjá til þess að breyta því þar. Það er ekki á dagskrá hjá honum eins og kom fram í fréttum á RÚV:

„Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir ótrúlegt klúður hafa orðið í málaflokki fatlaðra í meðförum sveitarfélaga. Meðal annars hafi kostnaður vegna lagabreytinga mögulega verið vanmetinn. […] Sömu sögu er að segja í Kópavogi. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að farið hafi verið í umfangsmikla greiningu á stöðunni og bætir við: „Það verður auðvitað líka að svara spurningunni hvenær sveitarfélögin eru mögulega að gera meira en lögboðnar skyldur kveða á um og reikningur vegna slíkra hluta verður ekki sendur ríkinu.“

Það segir sig sjálft að ríkið hefur klúðrað þessum málum gjörsamlega. Við erum með 100–150 fatlaða einstaklinga fasta inni á hjúkrunarheimilum. Ég kalla það hálfgerða hreppaflutninga. Við erum með stóran hóp öryrkja og fatlaðs fólks í fátækt, jafnvel sárafátækt. Einhverra hluta vegna þá er sagt, vegna þess að ríki og sveitarfélög sömdu ekki, klúðruðu reikningum, gátu ekki gengið frá þannig að þau reiknuðu rétt og sömdu rétt, að það sé fötluðu fólki að kenna. Svo rífast þeir inn á milli um hverjum þetta sé að kenna. Það er eiginlega furðulegt að það skuli ekki hafa risið upp mótmæli hreinlega út af þessu máli vegna þess að það er auðvitað alveg með ólíkindum að setja málið svona upp, að þetta sé allt fötluðu fólki að kenna, kostnaðurinn vegna þess.

Ef við bara horfum á dæmið þá er ég alveg sannfærður um að það hefði eitthvað heyrst ef við tækjum 15 milljarða kr. sem fara núna í umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk, þar er raunhækkun um 7 milljarða, og ég hefði sagt: Heyrðu, þessir 7 milljarðar, þetta er allt flóttafólki að kenna. Fjármál ríkisins eru í tómu bulli vegna þessara 7 milljarða í flóttafólk. Hvað hefði það þýtt? Það er auðvitað kolrangt líka, alveg jafn rangt og að blanda fötluðu fólki inn í klúður ríkis og sveitarfélaga.

Tökum dæmi. Um hvað snýst málið í þessum málaflokki? Ég hef áður farið ofan í saumana á því sem varðar þjónustu við fatlað fólk. Ég er með skýrslu frá 2020 og ef við tökum þessa liði sem eru undir — vegna þess að það er eins og látið sé liggja að því að þetta sé eingöngu NPA, notendastýrð persónuleg aðstoð, sem við erum að ræða. Því er einhvern veginn alltaf komið að, að þar sé potturinn brotinn, þarna sé verið að sóa peningum og valda skuldum. En ef við tökum bara þessa flokka sem eru þarna undir þá er það stoðþjónusta og frekari liðveisla. Það eru sameiginlegir liðir sem eru ýmsir liðir innan málefna fatlaðs fólks. Það er búseta, skammtímadvöl, stuðningsfjölskyldur, frístundaþjónusta, lengri viðvera, börn með þroska- og geðraskanir eru inni í þessu. Vinnumiðuð stoðþjónusta, notendasamningar og NPA-samningar og önnur þjónusta. Tólf liðir, einn liður af þessum er NPA. Það að reyna að koma því inn hjá fólki að þeir sem þurfa á NPA-þjónustu að halda séu að valda því að skuldir borgarinnar og jafnvel ríkisins séu að fara úr böndum er auðvitað kolrangt og er þeim sem eru með þann málflutning til háborinnar skammar.

Það er talað um að persónuafslátturinn muni hækka um 5.000 kr. og skattleysismörk um 16.000 kr. Skattur á 500.000 kr. laun muni lækka um 7.314 kr. En það er hvergi sagt í þessu blessaða riti hvað við með okkar laun eða ráðherralaun eða hærri fáum í skattalækkun. Við fáum nefnilega helmingi meira sem er auðvitað algjörlega fáránlegt. Ef persónuafsláttur hefði fylgt vísitölu og farið eftir lögum og reglum eins og á að uppfæra hann frá því að staðgreiðsla skatta var tekin upp væri hann ekki 59.600 kr. í dag. Hann væri yfir 90.000 kr., nærri helmingi hærri. Þetta sannar gífurlegar skattahækkanir á þá sem verst standa. Þetta þýðir í raun bara borðfast að 300.000 kr. ættu að vera skattlausar í dag. Við í Flokki fólksins erum með frumvarp um 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. Þá erum við líka búin að taka inn í kjaragliðnun og aðra þætti sem hafa gegnum árin valdið því að þeir sem eru að reyna að tóra á lífeyrislaunum almannatrygginga ættu að vera með a.m.k. 100.000 kr. hærri útborgun heldur en þeir eru með í dag.

Þeir hæla sér af því að hækka persónuafslátt um 5.000 kr., hann fari í 64.600 kr. um áramótin, en það er bara langt frá því að vera nægileg hækkun vegna þess að á sama tíma er verið að tala um að almenn hækkun almannatrygginga eigi að verða 4,9%. Það er verðbólgan sem fjármálaráðherra og ríkisstjórnin hefur áætlað á næsta ári. Það er alveg ótrúlega fyndið þegar þeir fara að áætla vegna þess að þeir hafa aldrei haft rétt fyrir sér hver verðbólgan verður. Hún verður örugglega ekki rétt mæld hjá þeim. Það er áætlað að útgjöld vegna þessa verði 10,7 milljarðar. En hvað segir þetta okkur? Það segir okkur ekki neitt vegna þess að þegar þessir 10,7 milljarðar eru búnir að fara í gegnum skattkerfið, skerðingakerfið og keðjuverkandi skerðingakerfið, alveg yfir til sveitarfélaga, þá má þakka fyrir að þau sem eiga að fá þetta geti haldið eftir 10–15% af þessari upphæð. Þannig að þarna er verið að auka fátækt og stórauka sárafátækt.

Það hlýtur samt að vera svolítið furðulegt í þessu samhengi það sem kemur fram í þessu riti um fjölmiðla. Þar er heildarpakkinn um 7 milljarðar. Aukningin, hækkunin er 10,6%. Setjum það í samhengi við 4,9% hækkun í almannatryggingakerfinu. Frjálsir fjölmiðlar, einkareknir fjölmiðlar — það er ekki hægt að kalla þá það, einkareknir fjölmiðlar á ríkisstyrk — það á ekkert að eiga við það, ekki neitt. Þeir fá 10,6%. Það stendur hreinlega að það sé varanleg aukning um 360 millj. kr., þeir eru sem sagt að hækka, það er verið að tvöfalda þar. Þarna er til nóg af peningum. Þarna er hægt að hafa 10,6% hækkun en lífeyrissjóðslaun er bara hægt að hækka um 4,9%.

Við sjáum þarna svart á hvítu hverjir eru útvaldir og hverjir eiga að fá minnst. Tekjusagan.is er ein af uppáhaldssíðum hæstv. fjármálaráðherra. Þar er hægt að sjá hversu þeir sem reyna að tóra á lífeyrislaunum almannatrygginga hafa það gott. En hæstv. fjármálaráðherra gleymir alltaf viljandi og segir ekki frá því í hvert skipti sem hann talar um tekjusöguna.is að þar inni eru ekki skerðingar. Skerðingarnar koma nefnilega löngu eftir á og hvað þá keðjuverkandi skerðingarnar sem geta teygt sig langt.

Okkur ber skylda til að reyna að taka á húsnæðisvanda ungs fólks sem var hreinlega platað með því að segja að við værum lágvaxtalandið Ísland. Við erum búin að sjá ótrúleg dæmi um það hvernig hefur verið farið með ungt fólk þar sem afborganir á mánuði hafa tvöfaldast. Það segir sig sjálft að ef einhver var að borga um 200.000 kr. af láni og réð vel við það þá ræður hann ekki við 400.000 kr. á lágmarkslaunum. En síðan komu hérna til umræðu leigubremsur. Auðvitað þarf eitthvað að gera. Það getur ekki verið eðlilegt á þessum tíma þar sem við erum bæði með verðbólgu og húsnæðisskort, að maður sé að hitta og heyra í fólki sem er að fá um 300.000 kr. útborgað eftir skatt og er að reyna að lifa af þeirri upphæð eða tóra á henni, það er varla hægt að lifa á henni, og þarf síðan að borga 260.000 kr. í leigu. Það segir sig sjálft að það á ekki nema 40.000 kr. eftir og kannski aðeins meira ef fólk fær einhverjar leigubætur. En hvað á maður að segja við þetta fólk, þann einstakling sem sýnir manni að allt í einu sé búið að hækka leiguna um 60.000 kr. á mánuði? Hún er komin í 320.000 kr. en viðkomandi fær bara 300.000 kr. útborgað og hann missir húsnæðið.

Það sem er kannski furðulegast í þessu er að aðilar ríkis og sveitarfélaga eru að berjast um þetta húsnæði, Vinnumálastofnun og sveitarfélögin. Það er orðinn slagur um að henda einni fjölskyldu út til að koma annarri inn. Svo eru einhverjir sem eiga þetta húsnæði, leigufélög og aðrir, sem græða á tá og fingri. Þetta er alveg fáránlegt og á ekki að eiga sér stað en þessari ríkisstjórn er alveg sama.

Hæstv. fjármálaráðherra sagði hér í morgun að það væri búið að semja við sérgreinalækna sem er auðvitað frábært mál. Það tók langan tíma. En það er ekki búið að semja við sjúkraþjálfara. Það er búið að taka lengri tíma að koma því á. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir því að hver aukatími núna í sjúkraþjálfun kostar rúmar 2.000 kr. Ef þú þarft sjúkraþjálfun tvisvar í viku þá erum við að tala um einhverjar 4.500 kr. og það gera 18.000 kr. á mánuði. Ég veit um fólk sem hefur ekki efni á því að fara í sjúkraþjálfun, fólk sem er að reyna að lifa á lífeyrislaunum sem eiga bara að hækka um 4,9% á sama tíma og þeir sem vaða í peningum eiga að fá 10,6%. Hver er sparnaðurinn með þessu? Hvers vegna í ósköpunum leyfa þeir þessu að viðgangast? Hver sem hefur ekki efni á sjúkraþjálfun — málið leysist ekkert, viðkomandi endar sennilega í mörgum tilfellum í dýrasta úrræðinu, inni á sjúkrahúsi, í rúmi sem kostar hvað, tugi þúsunda, jafnvel 100.000 kr. á sólarhring? Nei, þeim er sko alveg sama þótt stór hópur af veiku fólki hafi ekki efni á sjúkraþjálfun og endar í dýrasta úrræðinu.

Á sama tíma kvartar ríkisstjórnin yfir því að sjúkrastofnanir ráði ekki við að útskrifa fólk. Hún eykur á vandann og kvartar síðan yfir eigin rugli. Þetta er alveg stórfurðulegt að það skuli vera svona ástand.

Ég vil koma því að að mér finnst að ríkisstjórnin verði að fara að hysja upp um sig og reyna að sýna það virkilega, ég myndi þá segja helst Vinstri græn, að hún sé að hugsa um þá sem þurfa mest á því að halda, þá sem eru að reyna að lifa á þessum lægstu bótum. Við gerum auðvitað okkur öll grein fyrir því að það lifir enginn á lægstu bótunum sem eru í boði, það er algjörlega útilokað. En ríkisstjórnin leyfir því að viðgangast að það sé hægt að setja inn í svona doðrant eitthvað sem er svo langt frá því að standa undir því, reynir ekki að hjálpa fólki. Hugsið ykkur líka óskammfeilnina eins og kom fram í stefnuræðu forsætisráðherra þar sem hún var að hæla sér af því að þau væru búin að hækka frítekjumörk öryrkja í 200.000 kr. á mánuði. En þau eiga að standa óbreytt. Þau ætla ekki að hækka frítekjumörk. Þau ætla ekki að draga úr skerðingunum. Þau ætla ekki að sjá til þess að þessi hungurlús, 4,9%, skili sér að fullu. Það er ekki einu sinni hægt að sjá til þess að þetta skili sér til þeirra sem þurfa. Nei, það gengur ekki upp. Og með þessa hækkun frítekjumarks í 200.000 kr., þá gleymist alltaf að segja að þetta frítekjumark gildir ekkert fyrir alla. Það gildir ekki fyrir þá sem eru með heimilisuppbót, fyrir þá sem eru með sérstaka uppbót. Þetta er eiginlega bara fölsun. Það er verið að reyna að sannfæra fólk um að verið sé að gera eitthvað rosalega gott með þessu en þeir sem lifa í þessu átta sig á því strax að þú þarft að vera algerlega með allt á hreinu áður en þú ferð af stað til þess að reyna að vinna. Viðkomandi þarf að átta sig á því hvað það getur kostað þótt hann fái einhverjar 100.000 kr. í vinnulaun aukalega, sem hann er að leggja mikið á sig til að ná út af sinni líkamlegu stöðu og heilsu. Það er ekkert að skila honum þótt ríkisstjórnin segi: Þú hefur 200.000 kr. frítekjumark. Það gildir ekki, það gildir sem kemur fram hjá Tryggingastofnun ríkisins. Það gildir hvernig skerðingarnar taka á þessum hlutum. Það er frumskógur sem margir lenda í og fá bakreikning.

Þessi fjárlög, ríkisstjórnin — er tekið á þessu? Nei. Þeir vita það nefnilega, þeir eru búnir að átta sig á því, að ef þeir láta þúsundkall inn fá þeir í flestum tilfellum 800–850 kr. af honum til baka. Þá geta þeir haldið áfram að hæla sér af þessu: Við létum ykkur fá þúsundkall. En þeir segja aldrei frá því hvað þeir tóku í skatta, skerðingar og keðjuverkandi skerðingar til baka.

Að lokum vil ég, með leyfi forseta, lesa upp orðrétt viðbrögð stjórnar Geðhjálpar við ummælum fjármálaráðherra, nefnilega á því sem ég byrjaði á í upphafi, um málefni fatlaðs fólks.

„Í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins þann 8. september sl. ræddi fjármálaráðherra um málefni fatlaðs fólks. Hann var þar að svara fyrir þá fullyrðingu sveitarfélaganna að kostnaður við flutning málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaganna hafi verið vanmetinn. Fjármálaráðherra taldi hugsanlegt að verkefnið hafi ekki verið nægjanlega vel unnið en vildi þó leita skýringa á öðrum stöðum en hjá ríkinu:

„Það verður auðvitað líka að svara spurningunni hvenær sveitarfélögin eru mögulega að gera meira en lögboðnar skyldur kveða á um og reikningur vegna slíkra hluta verður ekki sendur ríkinu.“

Hann endurtók þetta síðan í lok viðtalsins og var ef eitthvað er enn afdráttarlausari:

„Og svo verður að skoða það ofan í saumana hvort það sé verið að veita þjónustu langt umfram það sem lögin segja til um, eða kostnað sem ekki er sanngjarnt að velta aftur í fangið á ríkinu.“

Biðlistar fatlaðra, bæði barna og fullorðinna, eftir þjónustu eru í flestum tilfellum mjög langir. Starfsfólk sem vinnur við málaflokkinn er undantekningalítið á lágum launum og starfsmannaveltan er mikil. Þetta í bland við skort á fagmenntuðu starfsfólki sýnir hvar forgangsröðun stjórnvalda raunverulega liggur þegar kemur að málaflokki fatlaðra. Dæmi eru um að einstaklingar hafi þurft að dvelja á geðdeildum svo árum skiptir vegna þess að ekki er hægt að veita þá þjónustu sem lög um félagsþjónustu sveitarfélaga og lög um málefni fatlaðs fólks kveða á um. Þetta er ekki vegna ofþjónustu sveitarfélaga heldur vegna skorts á þjónustu.

Sveitarfélögin hafa í nokkur ár bent á vanmat á kostnaði við málaflokkinn við flutning hans frá ríkinu til þeirra. Á þetta var strax bent við meðferð málsins fyrir þinginu. Landssamtökin Geðhjálp hefur ítrekað bent á þá alvarlegu stöðu sem er í málaflokki fatlaðra. Einstaklingar fá hreinlega ekki lögbundna þjónustu vegna þessara deilna ríkisins við sveitarfélögin. Samtökin hafa alls ekki orðið vör við ofþjónustu af hendi sveitarfélaganna enda er hún ekki fyrir hendi. Fólk fær ekki þá þjónustu sem það á rétt á samkvæmt lögum. Þetta hefur blasað við frá því að málaflokkurinn var fluttur til sveitarfélaganna.

Ummæli fjármálaráðherra eru því kaldar kveðjur til þeirra fjölmörgu sem bíða á biðlistum eftir þjónustu, m.a. einstaklings sem hefur beðið á réttar- og öryggisgeðdeild í sjö ár eftir viðeigandi úrræði. Fólk sem á rétt á þjónustu er oft fast á milli þessara tveggja stjórnsýslustiga. Landssamtökin Geðhjálp ítreka að slíkt kallast ekki ofþjónusta heldur þjónustuleysi.

Stjórn Landssamtakanna Geðhjálpar.“

Þetta má heimfæra yfir á málefni fatlaðra, öryrkja, aldraðra. Ríkisstjórnin er og hefur verið að sjá til þess síðan ég kom á þing, þetta er í sjöunda skiptið sem ég er að ræða hér fjárlög, að í öll þessi skipti hefur orðið kjaragliðnun. Í öll þessi skipti hafa fatlaðir, aldraðir, öryrkjar og láglaunafólk gengið skert frá borði. Þeir einu sem geta verið ánægðir eru þeir sem hafa næg fjárráð, kvótagreifar, þeir sem eru eingöngu með fjármagnstekjur. Þetta eru þeir sem ríkisstjórnin styður og hjálpar. Hinir fá smá, fá ekki einu sinni verðbólgu bætta. Við vitum að verðbólgan er helmingi hærri heldur en þessi 4,9% sem eru boðuð. Ef eitthvað er þá hefði ég sagt að ef ríkisstjórnin hefði virkilega viljað sýna að hún ætlaði að gera eitthvað þá hefði hún hækkað um 10,7%, svipaða hækkun og svokallaðir einkareknir og frjálsir fjölmiðlar eru að fá. Ef hún hefði gert það þá hefði hún líka á sama tíma átt að sjá til þess að hækka skerðingarmörk, draga úr öllum skerðingum, hækka frítekjumörk og sjá til þess á sama tíma að allt sem varðar öryrkja myndi fylgja, hækka nákvæmlega eins og þessi 10,7% og síðan sjá til þess að sú hækkun myndi skila sér beint í vasa þeirra án þess að skerða, eins og það er að gera um 80–85% með sköttum og skerðingum og keðjuverkandi skerðingum sem er auðvitað rosalega gróft fjárhagslegt ofbeldi gagnvart þessum hóp. En þarna er ríkisstjórnin að sýna sitt rétta andlit.