fjárlög 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið. Þetta er nefnilega akkúrat þannig. Ég skal alveg viðurkenna að ég var ekkert mikið að hugsa um almannatryggingar eða hvernig það kerfi virkaði fyrr en ég lenti í þessu kerfi. Þá labbar maður hreinlega á vegg. Ég held að ég hafi aldrei orðið eins undrandi og þegar ég á sínum tíma uppgötvaði allt í einu að það ætti að hirða af mér allar bætur almannatrygginga í heilt ár, bara af því að ég fékk eingreiðslu úr lífeyrissjóði. Hún hjálpaði mér jú til að grynnka á skuldahala á þessum tveimur, þremur árum sem ég var búinn að vera í þessu kerfi. En þá fór ég að skoða þetta kerfi og átta mig á því að það er eitthvað skrýtið við þetta. Síðan seinna meir, bæði hjá Öryrkjabandalaginu og Sjálfsbjörgu og síðan BÓT, félag sem ég var með, og þegar ég fór á þing, fór ég að rýna þetta aftur í tímann, sjá hvað breyttist. Þetta breyttist auðvitað við staðgreiðslu skatta. Þá var lífeyrir skattlaus og maður átti meira segja 25–30% upp í lífeyrissjóð. Síðan var lögfest að persónuafslátturinn ætti að hækka. Eins og ég sagði hérna í ræðu áðan þá ætti hann að vera núna yfir 90.000 kr. eða svo í dag en er ekki nema 59.600 kr. Þannig að þarna byrjar kjaragliðnunin. Síðan byrjar auðvitað það sem við vitum að stendur í lögum, að það eigi að fara eftir launaþróun. Einhvern veginn hefur hver ríkisstjórn á fætur annarri getað þvælt þessu fram og til baka, gert bara eitthvað. Ég efast um að þau skilji sjálf hvernig þau fara að þessu. Og þau eru enn að gera þetta með þessari 4,9% hækkun. Enn einu sinni er verið að þvæla málunum einhvern veginn. Ég spyr mig, eins og ég sagði í ræðu minni, þegar ég rak augun í fjölmiðlana og sá 10,7% hækkun þar: Hvernig í ósköpunum er hægt að búa til svona í einu plaggi og reyna að verja þetta? Ég næ því ekki.