fjárlög 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla að byrja á pólitíkinni, varðandi atkvæðagreiðslu og að pólitíkin liggi hjá ráðuneytinu. Það sem ég var að segja hér áðan þegar var verið að tala um flatan niðurskurð á allt, þá var eins og það væri engin pólitík í því. Frumvarpið liggur auðvitað hjá ráðuneytunum og það eru þeirra línur sem lagðar eru í fangið á okkur og við tökum við. Nú er þetta komið til okkar og þá getum við farið að setja fingraför okkar á það og það höfum við gert í fjárlaganefnd og í meiri hlutanum og hefur verið kvartað mjög yfir því, talað um útgjaldaþenslu og báknið aukið og guð má vita hvað. Þannig að það liggi bara fyrir þá er það ekki svo að nefndin hafi ekki sett fingraför sín á það. Ætti valdið að vera meira? Já, líklega ætti það að vera meira.
Hins vegar vil ég segja varðandi sameininguna á Akureyri og halla í framhaldsskólum, og þess vegna var ég að koma inn á þetta líkan áðan, að það skiptir líka máli að það séu ekki allir settir undir það sama. Við þekkjum það alveg í hinum dreifðu byggðum, ég meina, það að reka verkmenntaskóla í Neskaupstað er ekki það sama og að reka Tækniskólann í Reykjavík, þótt þeir væru jafn stórir, vegna þess að það er bara allt annað aðgengi og það er ekki eðlilegt að nýta sama reiknigrunninn. Það er það sem ég er kannski að tala um dálítið hér. Svo vil ég bara segja varðandi sameiningu á Akureyri að það eru störf í húfi líka. Það er það sem ég hef líka áhyggjur af. Ef þessi niðurskurður eða sameining á að skila 300–400 milljónum þá þýðir það 30–40 störf a.m.k. og það er talað um að skera niður í stoðþjónustuna.
Varðandi hvernig ég greiði atkvæði í fjárlögunum þá á það bara eftir að koma í ljós. Eins og ég segi verður spurninganna spurt í fjárlaganefnd varðandi þessa fjármögnun og annað slíkt. Ráðuneytið hefur sagt að nýtt reiknilíkan sé til staðar, reyndar búið að vera í hönnun (Forseti hringir.) mjög lengi, þannig að ég vil fá að sjá hvernig það lítur út.