154. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[18:11]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það vekur líka athygli í málaflokki 18 að það er nánast ekkert talað um menningarstofnanir utan höfuðborgarsvæðisins. Hlutfallslega, miðað við höfðatölu meira að segja, fer miklu minna í menningarstofnanir úti á landi heldur en hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er meira að segja þannig að þó að það sé einhver samningur við Menningarfélag Akureyrar, sem er smánarlegur miðað við það sem fer í menningarstofnanirnar hérna, þá bitnar það líka á Austfirðingum vegna þess að það gildir einhver nálægðarregla sem segir að af því að það er svo nálægt Akureyri þá þurfi þau ekki heldur neinn pening. (Gripið fram í.) Þannig að þetta bítur allt í skottið á sér. Hvað ætlar þingmaðurinn að gera við því?

Mig langar svo að lokum að spyrja: Það er ánægjulegt að það sé verið að taka upp gistináttaskatt á bæði hótel og skemmtiferðaskip, þótt megi útfæra það öðruvísi, og hann eigi að standa undir uppbyggingu ferðamannastaða m.a. en hvernig stendur á því að á sama tíma er verið að draga úr framlögum til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða?