fjárlög 2024.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Auðvitað á að hrósa því sem vel er gert og það er margt sem er búið að gera mjög vel þegar kemur að nýsköpunarmálum. Mér skilst að verið sé að taka regluverk og alls konar í gegn og ég vona að sú leið verði farin að gera þetta kerfi aðgengilegra, þ.e. að sækja um styrki, og líka að hugmyndin geti breyst í leiðinni og styrktarkerfin verði kvikari og sveigjanlegri þannig að fólk geti komið og fengið styrk fyrir verkefni, og ef hugmyndin breytist eitthvað eða þróast á leiðinni verði það hægt án þess að styrktarkerfið komi í veg fyrir það, því að allt er það hluti af sköpunarferlinu. Maður byrjar kannski með einhverja eina hugmynd og fer áfram með hana, kemst svo að því einhvers staðar á leiðinni að hún virkar ekki alveg og þá á að vera hægt að skipta um gír, breyta til og fara einhverja nýja leið án þess að kerfið stoppi þessa þróun af, sem ég hef heyrt að hafi verið vandamál í fortíðinni. Ef það á að laga svona hluti þá er það til góðs.
Eitt sem ég hefði líka viljað sjá okkur gera er að hugsa miklu meira um það, þegar við tölum um nýsköpunarstyrki, hvernig við styrkjum einstaklinga til nýsköpunar. Hvernig tryggjum við að allt fólk hafi tækifæri og möguleika á að skapa eitthvað og búa eitthvað til út frá eigin ástríðu? Hvernig sköpum við jarðveg sem tryggir að fólk hafi tækifæri til að blómstra á sínum forsendum? Það er allt hluti af þessari nýsköpunarhugmynd, þetta á ekki bara við um fyrirtæki heldur líka einstaklinga. Hluti af þessu er líka að leggja alvöruvinnu í það að uppræta fátækt og tryggja að allir hafi tækifæri til þess að búa til eitthvað nýtt sem er samfélaginu okkar öllu til góðs. Margir hafa ekki það tækifæri í dag.