fjárlög 2024.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt innlegg. Mér væri nokk sama hvort það væri Landsnet eða Orkustofnun eða hver sem væri sem tæki þessi hleðslumál að sér. Ég held mig fast við þá skoðun að hvata sé þörf, bæði varðandi einkabílana, þ.e. fjölgun rafbíla, og fækkun annars konar bíla. Það er því miður þannig að hér eru margir uppljómaðir af grænu byltingunni og þeirri framtíðarsýn en ég er ekki viss um að þorri landsmanna sé kominn þangað. Ég segi enn og aftur: Hvata er þörf. Ég held að við eigum að horfa til þess í fullri alvöru, úr því að það hefur ekki fengist rönd við reist gegn þeim tugmilljarða álögum á flug sem nú blasa við frá og með þarnæsta ári og á sjó líka, að nýta okkur þá peninga sem eru (Forseti hringir.) Úrsúlupeningar til orkuskipta og uppfinningar á nýjum leiðum. (Forseti hringir.) Förum í ammoníak- og vetnisframleiðslu á fullu með þeim peningum, hröðum þessu frá þeim væng.