154. löggjafarþing — 4. fundur,  15. sept. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[10:31]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Teitur Björn Einarsson og hefur til þess eina mínútu.

Frú forseti. Það er sagt að maður velur sér vini en maður getur ekki valið sér í hvaða frændgarði maður er. Ég gagnrýndi Samfylkinguna í gær fyrir gamaldags sósíalisma. Og hvað gerir hv. þingmaður? Hann kemur hér og vísar í yfir 100 ára gamla sósíalíska hagfræði, keynesismann, til að réttlæta nýju hagstjórnarfræði Samfylkingarinnar. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að staðfesta orð mín og gagnrýni um þennan gamaldags sósíalisma. En ég þakka líka hv. þingmanni fyrir svarið og að upplýsa um það hvað Samfylkingin leggur til grundvallar þegar hún ætlar að fara að hækka skatt á sjávarútveg án þess að hafa það í tengslum við afkomu greinarinnar, vísa í einhverjar rannsóknir. Það er þá bara ágætt að Samfylkingin er að fara að hækka skatt á landsbyggðina. Hún er að fara að hækka skatt á fólk og fyrirtæki hringinn í kringum landið sem stendur í framleiðslunni, (Forseti hringir.) stendur í verðmætasköpun og er að viðhalda störfum um land allt. Takk kærlega fyrir.