fjárlög 2024.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni eftirfylgnina. Ég skildi ekki almennilega þær hugmyndir sem hv. þingmaður var að stinga upp á eða spyrja hvort væru eitthvað sem mér hugnaðist, mér þótti þær ruglingslegar. En ég ætla að svara þessari spurningu með þessum hætti: Þegar einstaklingur fær jákvæða niðurstöðu þá fær hann annaðhvort stöðu flóttamanns, svokallaða viðbótarvernd, eins og frægt er orðið, eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þetta eru þrjú dvalarleyfi sem fólk er að sækja um. Þetta eru dvalarleyfi, fólk er að sækja um dvalarleyfi, það er í rauninni ekki að sækja um neitt annað. Þetta eru þær þrjár umsóknir sem eru skoðaðar þegar fólk sækir um svokallaða alþjóðlega vernd. Þegar fólk fær jákvætt svar um eitthvert af þessum leyfum þá fær það dvalarleyfi til eins til fjögurra ára og svokallað óbundið atvinnuleyfi. Það þýðir að þeim er ekki bara frjálst að vinna hvar sem þeim sýnist, í hvaða hlutfalli sem þeim sýnist, heldur geta þau líka stofnað sitt eigið fyrirtæki eða unnið sjálfstætt. Með öðrum orðum, einstaklingum gefst færi á að fara bara og sjá um sig sjálfir, finna sér íbúð, finna sér vinnu, hefja lífið. Ef við gerðum þetta á skemmri tíma þá held ég að það myndi spara fjölmarga milljarða. Vandinn er sá að þegar við segjum nei, t.d. — ég ætla að koma með eina tillögu: Hættum að senda fólk sem er með stöðu flóttamanns í Grikklandi til Grikklands, hættum að senda fólk til Ítalíu, hættum þessu vegna þess að þetta eru einstaklingarnir sem munu kæra málið vegna þess að þetta eru hræðilegar ákvarðanir. Það er verið að senda fólk í hræðilegar aðstæður. Þetta er löng málsmeðferð. Dyflinnarmál, þar sem á að senda fólk til annarra ríkja í Evrópu, taka marga mánuði vegna ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Ef við myndum ekki beita Dyflinnarreglugerðinni, t.d. í máli einstaklings frá Sýrlandi og taka málið til efnismeðferðar í stað þess að senda hann til Spánar, segjum að þetta væri Sýrlendingur, þá gæti hann fengið dvalarleyfi á einum degi í stað þess að það taki eitt og hálft ár að afgreiða málið hans vegna þess að það eru tímafrestir fram og til baka og við getum ekki ákveðið og það er kært fram og til baka og öll þessi vitleysa. (Forseti hringir.) Þessi tregða við að veita dvalarleyfi og segja já er það sem gerir þetta kerfi svona ógeðslega dýrt. (Forseti hringir.) Þannig að ég ætla bara að svara þessu svona: Við eigum að segja oftar já, það mun spara heilmikinn pening.