fjárlög 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Sá háttur hefur lengi verið viðhafður, að aðilar vinnumarkaðarins hafa samið um kaup og kjör og það verið skilyrt á þann hátt að það verði skrifað undir ef ríkið komi svo með þetta eða hitt. Þannig hafa kjarasamningar áratugum saman oftast gengið fyrir sig. Á þessum tímapunkti þá held ég að við þurfum einhverja drastískari umræðu heldur en bara það aðilar vinnumarkaðurinn, setjist niður og ríkið komi að borðinu á seinni stigum. Ég held að það þurfi umræðu strax af því að þetta er stórt og mikið mál að fara að berjast við verðbólguna á þann hátt að við leggjumst öll saman á árarnar. Ég sé ákveðna viðleitni í þessu fjárlagafrumvarpi til að koma til móts við óskir verkalýðshreyfingarinnar, m.a. hvað varðar hlutdeildarlán og stofnframlög. Þetta skiptir auðvitað máli og er bara gott innlegg inn í þær umræður sem eru að fara fram fljótlega. En ég held að við þurfum að gera meira. Það er alltaf verið að tala um að við þurfum að taka upp eitthvert norrænt samningalíkan en hluti af norrænu samningalíkani er norræn velferð. Hún þarf að vera til staðar hér og þess vegna verður ríkið að vera við borðið þegar menn ræða það hvernig við ætlum að ná utan um þetta sameiginlega. Það skiptir máli að við séum öll samstiga í þessu ef við ætlum að ná þeim árangri sem við viljum að náist og við getum náð ef við förum öll saman í verkefnið.