fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir að eiga þessi orðaskipti við mig. Þetta er gríðarlega mikilvægt verkefni og á þessum örfáu dögum sem liðnir eru af þessu þingi þá held ég að ég hafi heyrt frá nánast hverjum einasta þingmanni að mikilvægasta verkefnið núna sé að ná niður verðbólgu og í kjölfarið vöxtum. Þingmaðurinn fór m.a. yfir í sinni ræðu þau áhrif sem það hefur á þá sem verst eru staddir og þá sem hafa m.a. farið inn á fasteignamarkað á undanförnum tveim, þrem árum þar sem hækkunin þar hefur verið veruleg. Þetta er eitthvað sem skiptir íslensku þjóðina og velferðarkerfið, og raunverulega öll okkar kerfi, gríðarlega miklu máli á þessum tímapunkti. Þegar lífskjarasamningar voru gerðir var m.a. svona hnýtt saman, ekkert endilega formlegu samkomulagi heldur að einhverju leyti heiðursmannasamkomulagi um það að m.a. sveitarfélög myndu ekki hækka meira en 2,5% sín gjöld og okkur tókst alveg gríðarlega vel að ná utan um kjarabætur þannig að við höfum séð verulegan kaupmátt á undanförnum árum. Það er staðreynd. Auðvitað gefur á bátinn varðandi þann kaupmátt þar sem verðbólga hefur vaxið verulega.
En ég fagna þessum hugmyndum. Ég held að þetta sé eitthvað sem við þurfum að vinna þverfaglega. Við þurfum að vinna þvert á flokka og við þurfum að reyna að ganga í takt. Mín lokaspurning er kannski þessi: Telur þingmaðurinn að við séum og höfum kannski nógu mikinn félagslegan þroska til að ná þessum árangri? Hefst það ekki m.a. hjá okkur kjörnum fulltrúum hér sem gáfum tóninn varðandi þá hækkun sem stóð til á síðasta þingi og við ákváðum að hún yrði 2,5% (Forseti hringir.) og er það ekki líka bara ágætistaktur inn í haustið?