154. löggjafarþing — 5. fundur,  18. sept. 2023.

áætlunarflug til Húsavíkur.

[15:31]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég er ánægður að heyra að hæstv. fjármálaráðherra skuli a.m.k. ljá máls á þessu, en tíminn er naumur og ég held að það væri mjög óráðlegt ef ríkisstjórnin færi þá leið að leyfa fluginu að leggjast af til að geta síðan metið hvort það sé ástæða til að reyna að koma því í gang aftur. Eins og ég nefndi áðan er miklu ódýrara að koma í veg fyrir tjón en að taka á tjóninu þegar það er orðið, og alls ekkert víst að þá tækist að koma fluginu aftur af stað.

Af því að hæstv. ráðherra nefndi hér flugfélagið sem á í hlut þá er það rétt sem hæstv. ráðherra segir að Covid setti auðvitað verulegt strik í reikninginn og stjórnvöld hafa stutt við önnur fyrirtæki sem urðu illa fyrir barðinu á því. En svo fékk þetta flugfélag nú kannski trakteringar frá stjórnvöldum ekki alls fyrir löngu sem gerðu stöðu þess erfiðari, þegar flugleyfum var breytt — hvað svo sem segja má um það.

Aðalatriðið er þetta og ég spyr hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Er ekki rétt að bregðast við strax? Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið.