154. löggjafarþing — 5. fundur,  18. sept. 2023.

áætlunarflug til Húsavíkur.

[15:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég verð að halda því til haga að við erum hér að ræða mál sem er sérstaklega á málefnasviði annars ráðherra og væri eðlilegt að kynna sér hvaða áform hann hefur um að bregðast við. Ég efast ekki um það, eftir áralangt samstarf við ráðherrann, að honum er umhugað um að samgöngur séu öruggar og tíðar. Hér er komin upp sú staða að flugleið sem hefur borið sig gerir það ekki lengur og þegar ég var að vísa til þess að það þyrfti að líða einhver ákveðinn tími þar til útboð færi fram þá var ég einfaldlega að vitna til ríkisstyrkjareglna. En síðan eru auðvitað dæmi um það að stjórnvöld, vegna sérstakra ástæðna eða aðstæðna, geri ráðstafanir til að tryggja öruggar samgöngur. Ég myndi styðja það.