greiðsluþátttaka sjúklinga og samningur um þjónustu sérgreinalækna.
Herra forseti. Það er algjörlega óásættanlegt að það fari eftir því hve margar krónur eru í veski fólks hvort heilbrigðisþjónusta fæst eða ekki. Það stríðir gegn íslenskum lögum sem kveða á um að heilbrigðisþjónusta skuli vera aðgengileg óháð efnahag. Stór hluti heilbrigðiskerfisins okkar er í einkarekstri en þar skortir eftirlit, þarfagreiningar og viðbrögð við samningsleysi milli ríkis og einkareknu stofanna. Ef samkomulag næst ekki um gjaldskrá bitnar það fjárhagslega á þeim sem þurfa á þjónustunni að halda. Afleiðingin er sú að fólk sem ekki á peninga getur ekki sótt sér nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
Í síðasta og þarsíðasta tölublaði Heimildarinnar er sagt frá konum sem eiga rétt á niðurgreiðslu Sjúkratrygginga vegna brjóstaminnkunar. Ef þær geta ekki, heilsu sinnar vegna, beðið í meira en ár eftir að komast í aðgerð á Landspítala, þar sem fyrir eru 120 á biðlista, verða þær að leita á stofur lýtalækna úti í bæ. Samkomulag um gjaldskrá hefur hins vegar ekki tekist á milli lýtalækna og Sjúkratrygginga og því þurfa konurnar að greiða milljón krónur úr eigin vasa fyrir nauðsynlega læknisþjónustu. Stjórnvöld sem þykjast standa vörð um velferðarsamfélag þar sem heilbrigðisþjónusta er óháð efnahag verða að gyrða sig í brók. Fjársvelt opinbert kerfi býr til kjörlendi fyrir mismunun af þessum toga á hinum svokallaða heilbrigðismarkaði á Íslandi. Hvernig hyggst hæstv. heilbrigðisráðherra tryggja að einstaklingar sem eiga rétt á greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga þurfi ekki að bera fjárhagslegan kostnað til að ná heilsu vegna þess að samkomulag um gjaldskrá hefur ekki tekist vegna verka lýtalækna og þeir kjósa að gera ekki samning við Sjúkratryggingar?