greiðsluþátttaka sjúklinga og samningur um þjónustu sérgreinalækna.
Herra forseti. Hvað var hæstv. heilbrigðisráðherra að reyna að segja okkur? Að konurnar eigi bara að vera duglegri að bíða? Heilbrigðiskerfið virkar ekki sem skyldi ef ekki tekst að semja um þjónustu í einkarekstri þannig að hún falli að öðrum þáttum heilbrigðiskerfisins. Ríkið þarf að setjast við samningaborðið með þarfagreiningar upp á vasann og semja um magn og verð og sjá til þess að heilbrigðisþjónustan sé í raun óháð efnahag þeirra sem á henni þurfa að halda en þarfagreiningar eru ekki til nema í tveimur sérgreinum. Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur sagt hér í þessum sal að þarfagreiningar séu til en þær finnast hvorki hjá Sjúkratryggingum né landlækni.
Hvað er hæstv. ráðherra að gera til að koma í veg fyrir að aftur skapist slíkt ófremdarástand sem var hér í rúm fjögur ár, með tilheyrandi kostnaði sem féll á sjúklinga, áður en samningar tókust við sérgreinalækna í sumar?