154. löggjafarþing — 5. fundur,  18. sept. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[16:14]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Aðgerðir okkar í efnahagsmálum eru fólgnar í því að bæta afkomu ríkissjóðs og draga þannig úr fyrirferð ríkisins í hagkerfinu. Afkomubatinn er mælikvarði á framlag okkar til þessa mikilvæga verkefnis vegna þess að fyrir ungar fjölskyldur og launafólk í landinu er eiginlega ekkert mál jafn mikilvægt í augnablikinu eins og það að ná tökum á verðbólgunni, sem er sem betur fer farin að lækka, og leggja þannig betri grunn að forsendum fyrir kjarasamningagerð.

Varðandi barnabóta- og vaxtabótakerfin þá vísa ég til nýlegra breytinga sem tóku gildi um síðustu áramót og koma sömuleiðis til framkvæmda um næstu áramót. Þar höfum við komið betur til móts við barnafjölskyldur en lengi hefur átt við. Sérstaklega vil ég nefna að við erum að koma samtímagreiðslum út til fjölskyldna sem oft á tíðum þurftu að bíða í allt að heilt ár eftir að barn fæddist eftir því að fá bæturnar greiddar út. Nú erum við búin að breyta því og er það mikið framfaraskref. Við erum sömuleiðis að bæta fjármunum í kerfið og höfum hækkað bæturnar með þeim hætti að fleiri njóta þeirra. Við hækkuðum sömuleiðis viðmiðunarfjárhæðir í vaxtabótakerfinu um síðustu áramót og ég var að fara yfir það hér að við ætlum að viðhalda þeirri hækkun. Því er nú þegar tekið tillit til þessara hópa sem treysta á vaxtabótakerfið. Við erum að efla velferðarþjónustuna í fjárlagafrumvarpinu og það sést t.d. á framlögum til sjúkrahúsþjónustu og til heilbrigðisstofnana utan sjúkrahúsa.

Varðandi fjármagnstekjurnar þá höfum við verið að vinna að breytingum sem taka á því þegar einstaklingar eru með litlar sem engar launatekjur en talsverðar fjármagnstekjur. Það má vænta tillagna frá mér til að taka á slíkum tilvikum, (Forseti hringir.) en að öðru leyti held ég að ef við horfum til yfirstandandi árs megi hafa í huga að fjármagnsmarkaðir hafa frekar verið í basli. (Forseti hringir.) Hlutabréfavísitalan lækkaði t.d. um 18% síðasta árið.