breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Herra forseti. Skerðingar barnabóta á næsta ári munu hefjast við sömu fjárhæð og þegar fyrsta skattþrepinu sleppir. Fólk með 410.000 kr. á mánuði borgar hærri skatta og fær einnig skerðingar á barnabætur við sömu tekjumörk. Þetta er nú hið frábæra barnabótakerfi sem hefur verið bætt svo mikið líkt og hæstv. ráðherra vill meina. Þar sem viðmiðum í vaxtabótakerfinu er haldið óbreyttum þrátt fyrir hærra fasteignamat munu færri njóta vaxtabóta. Krafa verður frá verkalýðsfélögum um stuðning við heimilin frá stjórnvöldum til að greiða fyrir kjarasamningum. Ef verða á við því þarf að fjármagna þann stuðning og ef ekki má breyta skattlagningu á fjármagnstekjur nema að þessu leyti sem hæstv. ráðherra nefndi hér áðan, sem ég fagna, (Forseti hringir.) hvað segir þá hæstv. ráðherra um aukin auðlindagjöld eða hærri bankaskatt til að brúa þetta bil?