154. löggjafarþing — 5. fundur,  18. sept. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[16:18]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Vandinn við tillögur Samfylkingarinnar í efnahagslegu tilliti er sá að því er haldið fram að ekki sé nóg að gert til að sporna gegn verðbólgunni, en á sama tíma er hugmyndum teflt fram um tekjuöflun þar sem öllum nýju tekjunum verður ráðstafað á gjaldahliðinni. Þegar við erum komin með þá niðurstöðu í hendurnar er viðbótarframlagið til aukins aðhalds í ríkisfjármálum nákvæmlega ekki neitt. Þetta er ekki framlag til þess að halda aftur af vexti verðbólgunnar eða til baráttunnar við verðbólguna sem við búum við í dag. Hún er sem betur fer á niðurleið og við þurfum að sjá til þess að hún haldi áfram að lækka.

Í stuttu máli er ég þeirrar skoðunar, og ég bendi bara á það hversu mikið tekjuhlið ríkisfjármálanna er að taka við sér í þeim hagvexti sem við búum við í dag, að það sé ekki þörf á viðbótarskattahækkunum til að tryggja jafnvægi í efnahagsmálum.