breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Virðulegi forseti. Hér er spurt sérstaklega um frítekjumark vegna launatekna öryrkja og hvers vegna það taki engum breytingum milli ára. Þetta frítekjumark, sem á næsta ári verður 200.000 kr., var á árinu 2022 110.000 kr. þannig að það hækkaði rétt um 81–82% um síðustu áramót, langt umfram aðrar hækkanir sem hv. þingmaður vísar til að eigi að vera árlegar og sjálfsagðar. Þetta er aðalástæðan fyrir því að það er ekki aftur farið í breytingar á frítekjumarki öryrkja. Hin ástæðan er sú að það stendur yfir heildarkerfisbreyting, eins og ég vék að í minni framsögu, sem lengi hefur staðið til að fara í og breytingar á bótareglunum eru þar í heild sinni undir. Það er stefnt að því af þessari ríkisstjórn að taka upp nýtt kerfi fyrir lok kjörtímabilsins að því tryggðu að forsendur fyrir fjármögnun kerfisbreytinganna gangi eftir.