breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir andsvarið en þetta er samt algjörlega óskiljanlegt vegna þess að ef þið eruð að fara að breyta kerfinu og ætlið að reyna að stuðla að því að öryrkjar hafi meiri trú á því að geta farið aftur út á vinnumarkaðinn, hvers vegna í ósköpunum ekki að hækka þetta bara strax? Af hverju er verið að búa til hvata til að draga úr? Hvernig í ósköpunum eiga þessir einstaklingar að trúa því að þið ætlið að fara að gera eitthvað gott í endurskoðun kerfisins þegar þið eruð að draga þarna úr? Það er engin ástæða til þess nema bara — til að gera hvað? Klekkja á þeim sem vilja reyna að vinna? Viljið þið ekki að fólk reyni að vinna? Ég skil það ekki. Síðan ætla ég að ítreka spurninguna og vil fá svar við því: Hvers vegna í ósköpunum eru einkareknir fjölmiðlar taldir eiga að þurfa að fá þessar gífurlegu hækkanir, bæði prósentuhækkanir og tvöföldun, á sama tíma og eldri borgarar og öryrkjar eiga bara að fá 4,9% eða nær 6% minna? Hvers vegna í ósköpunum er þetta svona og hvernig stendur á því?