breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Virðulegi forseti. Það er rétt að við höfum boðað tekjuauka af þessu og hyggjumst leggja fram sérstakt lagafrumvarp, sem við ráðgerum að leggja fram á þinginu í októbermánuði. Ég vona að það takist hjá okkur. Þessar kerfisbreytingar eru hugsaðar í skrefum. Það má segja að við höfum stigið fyrstu skrefin um síðustu áramót með hækkun bifreiðagjaldsins og lágmarksvörugjaldi fyrir rafmagnsbifreiðar. Í næsta áfanga erum við að horfa á rafmagnsbifreiðar sem einstaklingar eiga og tengiltvinnbifreiðar og lítum til þess að taka upp kerfi kílómetragjalds fyrir þær. Í næsta skrefi, sem gæti komið áramótin 2024/2025, yrði farið í enn frekari kerfisbreytingar sem myndu snúa að öðrum bifreiðum á götunum og við myndum færa okkur úr eldsneytissköttum yfir í kílómetragjald. Síðan sæjum við fyrir okkur að kolefnisgjaldið myndi lifa áfram en um þetta verður rætt í a.m.k. tveimur frumvörpum og það fyrra, sem varðar næsta ár, kemur væntanlega fram í október.