154. löggjafarþing — 5. fundur,  18. sept. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[16:47]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Við erum hér komin að tala um hinn fræga bandorm en í þessu frumvarpi er það því miður þannig að gömul tugga ríkisstjórnarinnar er endurtuggin enn og aftur, þ.e. álögur eru hækkaðar á almenning á meðan fyrirtæki og fjármagnstekjueigendur sleppa nær alveg. Á sama tíma og ríkisstjórnin segist vera í baráttu við verðbólguna hækkar hún kostnað heimilanna og hellir þannig bensíni á verðbólgubálið.

Á sama tíma heyrum við flokk hæstv. fjármálaráðherra tönnlast á stöðugleika, en ég er farinn að halda að þessi stöðugleiki felist í því að það séu stöðugar hækkanir á öllu sem almenningur þarf að borga en að það sé líka stöðugleiki í því að þeir ríku þurfi að borga minna og minna. Já, stöðugleikinn sem þeir tala um er nefnilega ekki fyrir alla, bara þá útvöldu. Þetta sést einna helst þegar litið er til þess hvað fjármagnstekjuskattur hér á landi er lágur. Í þeim löndum sem við berum okkur saman við er fjármagnstekjuskatturinn mun hærri en gengur og gerist hér á landi.

Tökum nokkur dæmi. Í Danmörku er fjármagnstekjuskattur þrepaskiptur frá 37–42% og fer eftir því hversu háar tekjur fólks eru. Í Finnlandi er fjármagnstekjuskatturinn þrepaskiptur í 30 og 34%, með 4,4 milljóna mörk um það hvenær þú ferð yfir á efra þrepið. Í Noregi er meginreglan sú að fjármagnstekjur beri 22% skatt en það er sama hlutfall og gildir í raun um tekjuskattinn þar. Þeir eru reyndar með eitt sérstakt, sem ég nefndi hér áðan í andsvörum við hæstv. fjármálaráðherra, en það er að fjármagnstekjur af eignarhlutum í fyrirtækjum þarf að greiða út sem sérstaka tegund fjármagnstekna, enda eru þær kallaðar eigendatekjur. Yfirleitt er þar um að ræða arð eða hagnað af sölu hlutabréfa. Hugmyndin er sú að ekki eigi að vera hagkvæmara að taka út arð í stað þess að fá greidd laun úr eigin fyrirtæki og þess vegna bera þessar eigendatekjur hærra skatthlutfall, eða 37,8%.

Í Svíþjóð bera fjármagnstekjur 30% skatt en þó eru sérstakrar reglur varðandi persónulegar eignir og hagnað af hlutabréfum.

Svo má einnig nefna að á Írlandi er fjármagnstekjuskattur 33%, í Frakklandi er hann 30% og hátekjufólk er skattlagt um 4% til viðbótar og í Þýskalandi er skatthlutfall fjármagnstekjuskatts 25%, en þar er mjög takmarkað hvað má telja sem tengdan kostnað. Þegar þetta er borið saman við þau 22% sem greidd eru í fjármagnstekjuskatt hér á landi má sjá að Ísland er sannkallað velferðarsamfélag fyrir fjármagnstekjueigendur, eða ættum við kannski að kalla það bara skattaskjól? Það er mikilvægt að hafa í huga að samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni er sá fjöldi sem greiðir skatta af launum að dragast saman á meðan fjöldinn sem greiðir fjármagnstekjuskatt er að vaxa á milli ára. Hér er því komin gjá milli þeirra sem eru launþegar annars vegar og hinna sem geta nýtt sér það að stofna einkahlutafélag, skrifa þar ýmsan kostnað sem frádrátt, greiða sér út arð og komast þannig hjá því að greiða sinn skerf af samfélagslegum kostnaði. Það er vert að hafa í huga, eins og ég nefndi einmitt í andsvari við hæstv. fjármálaráðherra, að það eru helst sveitarfélögin sem verða af skatttekjum.

Við Píratar leggjum til að fyrsta skrefið í að auka réttlæti í skattheimtu hér á landi verði að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður upp í 30%, á sama tíma og persónuafsláttur fjármagnstekna hækki upp í 400.000. Við þetta ættu að skapast nýjar tekjur fyrir ríkissjóð vegna fjármagnstekna sem í staðinn mætti t.d. nota til að lækka aðrar álögur á almenning eða til þess að stórbæta þjónustuna.

Víkjum nú að öðru en fjármagnstekjuskattinum, enda er bandormurinn frumvarp til breytinga á mörgum mismunandi lögum. Eitt af því sem taka má eftir þegar bandormurinn er lesinn er að engar aðgerðir eru í honum til þess að skattleggja frekar þá sem eiga t.d. margar eignir sem leigðar eru út til ferðamanna. Á sama tíma erum við að sjá verðbólgu og aðra hluti gerast vegna skorts á húsnæði. Þarna hefði verið hægt á auðveldan hátt að stýra því að það sem leigt væri út í langtímaleigu yrði ekki skattlagt eins hátt og það sem leigt er út í skammtímaleigu. Við sjáum heldur ekki fleiri notkunarskatta á þær yfir tvær milljónir ferðamanna sem koma hingað ár hvert og eru að nota og nýta virkilega innviði okkar, án þess að þurfa að borga jafn mikið fyrir þá eins og t.d. er gert annars staðar.

Ég fékk leiðréttingu frá hæstv. fjármálaráðherra áðan þegar hann nefndi að leggja ætti fram sérstakt kílómetragjald í október, að það legðist bara á bíla einstaklinga. Hann meinti fólksbíla, ekki bara bíla einstaklinga, þ.e. bílaleigubílarnir fá þetta líka og er gott að heyra það.

Talandi um bíla og rafbíla. Nú um áramótin fellur niður sérstök ívilnun á virðisaukaskatti af rafbílum, reiðhjólum og öðrum vistvænum farartækjum. Það hefur verið ánægjulegt að sjá á undanförnum árum hversu vel þetta hefur verið nýtt, t.d. voru 70% nýrra bíla rafbílar. Það verður áhyggjuefni ef þetta hlutfall dregst saman og líka t.d. ef sala á reiðhjólum dregst saman.

Annað sem vantar alveg inn í þetta frumvarp er það að við reynum að þrýsta á fólk og aðila að menga minna. Þar horfum við sérstaklega á þá sem eru að menga mest, stóriðjuna og aðra stórnotendur. Á flestum öðrum stöðum í heiminum er verið að leggja á hærra og hærra gjald til þess að þrýsta á þessa aðila að draga úr menguninni en hér á landi er útblásturinn að aukast á sama tíma og við eigum að vera að draga úr honum. Þarna, eins og hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra nefndi hér í sumar á ráðstefnu í Háskóla Íslands, munum sitja uppi með risastóran kostnað sem hlýst af því að við náum ekki þeim markmiðum sem við sögðumst ætla að ná í París 2015. Ef við náum ekki þessum markmiðum fyrir 2030 fáum við, samkvæmt mati ráðuneytis utanríkismála, rukkun um allt að 10 milljarða kr. Það þýðir ekki að ýta þessu á undan sér og segja: Við reddum þessu 2029/2030, vegna þess að við þurfum að draga úr á hverju ári um ákveðið mörg prósent svo að við náum því að fara niður í þennan útblástur 2030. Ég veit að við gætum notað 10 milljarða í margt annað heldur en að borga fyrir eitthvað vegna algjörs aðgerðaleysis hjá þessari ríkisstjórn þegar kemur að loftslagsmálunum. Það er von mín að eitthvað bætist við í þennan bandorm í meðförum þingsins til að tækla eitthvað af þessum málum.