154. löggjafarþing — 5. fundur,  18. sept. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[17:03]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ef við ræðum um skattkerfið almennt þá er alveg ljóst að það eru hinir efnuðu sem borga mestu skattana. Við getum jafnvel farið í tölfræði sem hefur verið birt varðandi tekjutíundir. Það er ekki fyrr en komið er upp í sjöundu og áttundu tekjutíundina sem einstaklingar eru að borga meira í skatta en það sem þeir fá frá ríkinu. Þetta liggur allt saman fyrir.

Ég átta mig hins vegar ekki á hvað hv. þingmaður er að fara þegar hann segir að hinir efnuðu eigi að borga meira. Er hann þá að tala um að það þurfi eingöngu að hækka skattprósentuna eða eru það tekjurnar sem koma til? Það leiðir auðvitað til þess, sem er alveg sérstakt umræðuefni, að hættan við að hækka endalaust skatta á fólk er að tekjur ríkisins geta hreinlega minnkað. Þetta er atriði sem ég vildi gjarnan eiga frekari orðastað við hv. þingmann um. Hvar er jafnvægið í þessu?

Það sem ég spurði út í áðan í mínu fyrra andsvari og hv. þingmaður hefur staðfest, er að ekki er hægt með einföldum hætti að koma hér upp og bera saman íslenska fjármagnstekjuskattskerfið við Norðurlöndin án þess að skoða nákvæmlega hver skattstofninn er, hversu breiður hann er, hvaða reglur gilda til frádráttar o.s.frv. Þess vegna er rangt hjá hv. þingmanni að koma hér upp og horfa eingöngu á prósentutölurnar. Það gefur ekki rétta mynd af því sem hér er verið að ræða um.