154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

tilkynning um embættismenn fastanefnda.

[13:31]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill tilkynna að á fundi umhverfis- og samgöngunefndar, sem haldinn var í dag, 19. september, var Bjarni Jónsson kosinn formaður nefndarinnar og Vilhjálmur Árnason 2. varaformaður. Þá var Teitur Björn Einarsson kosinn formaður efnahags- og viðskiptanefndar á fundi nefndarinnar í morgun og á fundi atvinnuveganefndar fyrr í dag var Þórarinn Ingi Pétursson kosinn formaður nefndarinnar.