154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

Störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þetta er allt málaflokki fatlaðs fólks að kenna. Allt fötluðu fólki að kenna, segir borgarstjóri. Já, óráðsía og framúrkeyrsla í fjármálum Reykjavíkurborgar er fötluðu fólki að kenna. Allt væri jákvætt í fjármálum hjá þeim í borginni um heila 3,8 milljarða kr. ef málaflokkur fatlaðs fólks kostaði ekki svona mikið. Hæstv. fjármálaráðherra blandaði sér í þessa umræðu, sagði þennan útgjaldalið kominn úr böndunum og benti m.a. á NPA-samninga af því tilefni. Í viðtali við RÚV nýlega ræddi hæstv. fjármálaráðherra um málefni fatlaðs fólks, taldi að verkefnið hefði ekki verið nægilega vel unnið en vildi þó leita skýringa á öðrum stöðum en hjá ríkinu, því að mögulega væri verið að gera meira en lögboðnar skyldur kveða á um hjá borginni og reikningur vegna slíks verði ekki sendur ríkinu. Nei, auðvitað ekki. Þetta er allt saman fötluðum að kenna, fötluðu fólki sem kom hvergi nálægt þessum samningum. Það fer ekki á milli mála að kostnaður við flutning málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga var gróflega vanmetinn, bæði af ríki og borg. En það er á engan hátt fötluðum að kenna að Reykjavíkurborg klúðri samningum við ríkið og hafi ekki getu til að reikna kostnað við þennan nauðsynlega málaflokk rétt. Í þessum málaflokki eru biðlistar barna með þroska- og geðraskanir. Eitt barn á biðlista þar er einu barni of mikið. Einstaklingar dvelja á geðdeildum svo árum skiptir vegna þess að ekki er hægt að veita þá þjónustu sem lögbundin er hjá félagsþjónustu sveitarfélaga eins og lög um málefni fatlaðs fólks kveða á um. Þetta er ekkert annað en grófur skortur á þjónustu. Á annað hundrað fatlaðs fólks er sent hreppaflutningum landshluta á milli á hjúkrunarheimili. Ummæli fjármálaráðherra og borgarstjóra eru því kaldar kveðjur til þeirra fjölmörgu fatlaðra sem bíða á biðlistum eftir þjónustu samkvæmt lögum um mannréttindi þeirra, sem væri tryggð ef við værum búin að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks hér á Alþingi. Það er ekki ofþjónusta heldur klárt þjónustuleysi ríkis og borgar og þeim til háborinnar skammar. Þar af leiðandi er á engan hátt hægt að kenna fötluðu fólki um þeirra vangetu.