154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

Störf þingsins.

[13:34]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Á ellefu mínútna fresti er kona eða stúlka drepin af fjölskyldumeðlimi á heimsvísu. Heimilisofbeldi er vandamál alls staðar og Ísland er þar ekki undanskilið. Það er mikil aukning í heimilisofbeldistilkynningum. Í fyrra voru um 2.400 tilkynningar til lögreglu um heimilisofbeldi og ágreining. Heimilisofbeldi er langoftast af hendi maka eða fyrrum maka. Sumir vilja meina að það sé einungis verið að tilkynna ofbeldi oftar en áður en í dómskerfinu er alvarlegum heimilisofbeldismálum að fjölga.

Herra forseti. Getum við raunverulega verið viss um að ástandið sé ekki að versna í þessum málaflokki? Dómstólar eru með grófari ofbeldismál á sínum borðum og fleiri þolendur sem leita í Kvennaathvarfið upplifa sig í lífshættu. Þetta er ógnvænleg þróun sem er að eiga sér stað hér, herra forseti, og því er ekki hægt að líta fram hjá. Þessi fjölgun er ein og sér hrikaleg en það sem er einnig sláandi er hversu lengi þolendur þurfa að bíða eftir aðstoð. 120 einstaklingar eru í þessum töluðu orðum á biðlista hjá Stígamótum — 120. Það er svo langt frá því að vera ásættanlegt, herra forseti. Einstaklingur sem leitar í Bjarkarhlíð þarf að bíða í allt að tvo mánuði eftir viðtali. Aldrei hafa jafn margar konur og í fyrra leitað til Kvennaathvarfsins. Þá snúa alla vega 12% þeirra heim aftur til gerenda og líklega mun fleiri. Heimilið á að vera griðastaður hvers og eins en raunin er sú að heimilið getur verið mjög hættulegur staður.

Forseti. Þessi bið hefur afleiðingar. Við verðum að taka því alvarlega að tilkynningum um heimilisofbeldi sé að fjölga. (Forseti hringir.) Við verðum að bregðast við því ef þolendur leita sér hjálpar en ekki bjóða einungis upp á biðlista. Þolendur þurfa hjálpina strax.