Störf þingsins.
Herra forseti. Í tilefni dagsins má ég til með að hrósa hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Það var nefnilega á þessum degi fyrir sjö árum sem Alþingi Íslendinga samþykkti sennilega það eina almennilega sem ríkisstjórn hans gerði, að fullgilda Parísarsamninginn um samdrátt gróðurhúsalofttegunda til að við höldum hlýnun jarðar innan 1,5°C. Takk, Sigmundur Davíð, fyrir að hafa náð þessu í gegn á sínum tíma. Nú eru sjö ár liðin og í tilefni þeirra tímamóta er kannski rétt að líta um öxl og horfa fram á við. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er með það markmið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 55%. Hvernig gengur það? Ef við skoðum breytingarnar frá því 2015, þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gekk inn í Parísarsamninginn, hefur sú losun sem er á beinni ábyrgð stjórnvalda dregist saman um 5%. Hún hefur dregist saman um 140 kílótonn, munið þessa tölu. 140 kílótonn er samdrátturinn á þessum sjö árum. Hvað er fram undan? Fram undan þarf að auka þennan samdrátt um 1.400 kílótonn. Næstu sjö ár þarf sem sagt að skila tíföldu því sem hefur verið skilað á síðustu sjö árum og á sama tíma eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar að skila aukningu ár frá ári. Síðustu þrjú ár hefur verið aukning á losun gróðurhúsalofttegunda og það stefnir í enn eitt aukningarárið í ár. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar og metnaðarleysi og sjálfsblekking þegar kemur að loftslagsmálum er orðið að sjálfstæðu vandamáli. Við verðum að byrja það starf sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hóf og gera betur en Katrín Jakobsdóttir gerir og skila okkur í land þannig að við séum ekki að velta skuldinni yfir á komandi kynslóðir. En þá þurfum við að horfast í augu við það, herra forseti, (Forseti hringir.) að loftslagsstefna núverandi ríkisstjórnar er gjaldþrota. (Forseti hringir.) Á næstu sjö árum þarf að draga losun saman um tífalt meira en á síðustu sjö árum og það er ekkert í störfum ríkisstjórnarinnar sem sýnir að hún stefni þangað.