154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

Störf þingsins.

[14:02]
Horfa

Ragnar Sigurðsson (S):

Virðulegi forseti. Það er erfitt að setja sig í spor þeirra íbúa sem búa við endurtekið hættuástand og rýmingar vegna ofanflóðahættu. Þær rýmingar sem íbúar á Seyðisfirði hafa þurft að glíma við að undanförnu kalla eflaust fram mjög vondar tilfinningar og erfiðar minningar. Í kjölfar þeirra náttúruhamfara sem urðu á Seyðisfirði árið 2020 var sett í gang kröftug vöktunaráætlun og vöktun á hlíðum Austurlands efld til muna. Sú vöktun hefur veitt íbúum aukið öryggi við mjög svo erfiðar aðstæður og hefur sannað gildi sitt svo um munar. Það er mikilvægt að við horfum til þess að efla vöktunina áfram, halda henni í gildi og tryggja að rannsóknir á svæðinu hvað varðar ofanflóðahættu verði auknar til muna. Jafnframt er mjög mikilvægt að við eflum staðbundið eftirlit og komum staðbundinni kunnáttu á svæðið meira en gert er í dag. Samhliða því eigum við að halda áfram því sem við höfum gert vel til að leggja okkar af mörkum í þágu þess að tryggja öryggi á svæðinu, flýta ofanflóðaframkvæmdum eins og ríkisstjórnin hefur einsett sér að gera og tryggja að það gangi eftir.