154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

réttlát græn umskipti.

3. mál
[14:31]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Mig langar að byrja á því að þakka þingflokki Samfylkingarinnar fyrir að leggja fram þessa tillögu. Ég vil kannski byrja á því hvernig tillagan myndi slá mann ef maður hefði búið í helli síðustu fimm ár og myndi koma hingað inn á þing, grípa tillöguna og lesa:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera tímasetta og fjármagnaða aðgerðaáætlun til að tryggja réttlát græn umskipti …“.

Er það ekki það sem hún á að gera hvort eð er? Þetta er svo mikið grundvallaratriði, svo mikið grundvallarverkfæri til að ná einhverjum árangri í loftslagsmálum, að auðvitað ætti ríkisstjórnin að vera löngu búin að gera þetta. En vandinn er einmitt, eins og virðulegur forseti þekkir vel, að hún er ekki búin að því.

Í lok sumars fékk ég svar frá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um það hvenær hann ætlaði að uppfæra þá aðgerðaáætlun sem liggur fyrir af hálfu ríkisstjórnarinnar, vegna þess að hún er frá árinu 2020 og er að uppistöðu til sú sama og var lögð fram 2018, stuttu eftir að ríkisstjórnin tók við. Árin 2018 og 2020 var ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur með önnur markmið í loftslagsmálum en hún er í dag. Miðað var við að vera í samfloti með Evrópusambandinu um 40% samdrátt í losun. Nú er miðað við 55% en aðgerðaáætlunin hefur ekki verið uppfærð til að endurspegla það. Það er eins og ráðherranum hafi ekki dottið í hug þegar hann settist í embætti eftir kosningar 2021 að hann þyrfti kannski að endurskoða þetta grunnplagg síns ráðuneytis.

Í svari ráðherra sem ég nefndi hér kom fram að hann teldi sig ekki bundinn af neinu öðru en lagarammanum, þar sem stendur að aðgerðaáætlun skuli uppfæra eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti. Hann ætlar að fullnýta sér þann tíma og koma með uppfærða aðgerðaáætlun núna um áramótin, þegar meira en helmingur er liðinn af þessu kjörtímabili. Þetta heitir að sitja auðum höndum. Þetta heitir alla vega ekki að sýna metnað. Þess vegna er ég hræddur um, frú forseti, að við hér á þingi þurfum að taka þessi mál dálítið til okkar, eins og t.d. með því að leggja til að ríkisstjórnin geri þær áætlanir sem henni er augljóslega ekki treystandi til að gera upp á sitt eindæmi og ég held að þessi tillaga til þingsályktunar væri nauðsynlegur þáttur í því. Það fer nefnilega ekki alveg saman sá metnaður sem ríkisstjórnin segist hafa í loftslagsmálum og þær aðgerðir sem hún grípur til, hvað þá sá árangur sem hún getur sýnt af verkum sínum.

Nú er þessi ríkisstjórn búin að sitja frá árinu 2017, í sex ár, og þess vegna erum við farin að sjá afraksturinn og uppskeruna af því sem hún sáði. Hún getur ekki lengur skýlt sér á bak við að einhverjar fyrri ríkisstjórnir hafi verið algerlega glataðar í þessum málum, þó að núverandi ríkisstjórn innihaldi reyndar flesta sömu flokkana og þær ríkisstjórnir. Nei, það er ekki lengur skálkaskjólið sem hægt er að fela sig á bak við. Núna eru það aðgerðir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur sem eru vegnar og metnar þegar við fáum útreikninga frá t.d. Umhverfisstofnun, sem sýndu nú í sumar að markmið ríkisstjórnarinnar um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 væri fjarri því að nást miðað við þær aðgerðir sem til eru. Í staðinn fyrir 55% væri líklegt að 24% næðust. Þetta er m.a. vegna þess að ríkisstjórnin settist ekki niður og uppfærði aðgerðaáætlunina þannig að hún endurspeglaði þann metnað sem hún segist hafa aukið, þann meinta metnað sem hún hefur í loftslagsmálum.

Eins og kom fram í máli hv. frummælanda Oddnýjar Harðardóttur hér áðan þá kemur vissulega fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að miða skuli að því að aðgerðir í þágu loftslagsmála stuðli að réttlátum umskiptum. Þó það nú væri. Þó það nú væri að við nýttum ferðina þegar við erum að bjarga jörðinni til að byggja upp betra samfélag í leiðinni. Samlegðaráhrifin eru augljós og það væri sorglegt að vera í kerfisbreytingum án þess að ná þeim fram.

En hvað sýna verkin? Hv. þingmaður nefndi rafbílana sem ASÍ kom inn á í sinni umsögn á síðasta þingi. Þeir eru einmitt fyrirtaksdæmi um það hvernig ríkisstjórnin hefur verið með ekki bara skakkan fókus heldur allt of lítinn fókus. Til þessa hefur meginþungi þeirra fjármuna sem hafa runnið í gegnum ríkiskassann, hvort sem er með beinum útgjöldum eða með ívilnunum á gjaldahliðinni, farið í að niðurgreiða rafbíla. Það er vissulega ein af aðgerðunum sem þurfti að grípa til, en að hún sé langtum stærri en nokkuð annað sem þessi ríkisstjórn hefur gripið til — aðgerð sem gagnast fólki með tekjur yfir meðallagi, sem er ekki þannig úr garði gerð að tryggt sé að hún dragi einu sinni úr fjölda fólksbíla á götunum vegna þess að rafbíllinn getur verið fjórða eða fimmta bifreið á heimili ef fólk vill og ívilnunin fylgir samt, þá er ekkert réttlæti í þessari aðgerð. Ríkisstjórnin er búin að vera algjörlega blind á þennan þátt.

Síðan var annað sem ég hjó eftir hjá hv. frummælanda, að ríkisstjórnin þyrfti að sýna frumkvæði og vísa veginn. Það er svolítið erfitt að festa hönd á því hvernig þetta er gert, en þetta er það sem vantar mest hjá ríkisstjórninni. Það vantar að ríkisstjórnin setji raunveruleg markmið, fylgi þeim eftir með alvöruaðgerðum og fjármagni og vísi veginn. Það er kjarninn í því sem loftslagsráð nefndi í uppgjöri sínu sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir nefndi áðan: Það vantar stefnu. Aðgerðaáætlunin inniheldur míkróskópískar aðgerðir á afmörkuðum sviðum samfélagsins, það vantar stefnu yfir allt samfélagið um hvað eigi að gera. Þá dugar ekki að benda á eitthvað óljóst í stjórnarsáttmála sem á ekki einu sinni að reyna að ná fram miðað við aðgerðir. Það vantar skýra stefnu sem helst væri samþykkt hér á þingi, ríkisstjórnin myndi leggja hana fram og hleypa henni í gegnum þinglega meðferð, og það vantar að lögfesta markmið. Eina markmiðið sem er búið að festa í lög er kolefnishlutleysi árið 2040 og þá treysti ríkisstjórnin því að fólk væri bara búið að gleyma tilvist sinni. Við þurfum að lögfesta markmiðið sem er næst okkur í tíma um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030, markmiðið samkvæmt Parísarsáttmálanum sem ríkisstjórnin segir að sé 55% en þyrfti að vera hærra. Gott og vel, lögfestum bara markmiðið sem ríkisstjórnin er með, byrjum þar. Þá þyrfti alla vega að ná þessu markmiði um 55% en ekki láta duga að rétt slefa upp í 24%, sem stjórnin ætlar að láta duga.

En hvað er ríkisstjórnin síðan að gera í dag? Við ræddum þetta aðeins í kringum fjárlagafrumvarpið. Hún er að draga saman umfang aðgerða í þágu loftslagsmála. Árið 2024 er hún að fara að draga þær aðgerðir saman. Bein framlög til málaflokka umhverfis- og orkumála munu lækka um 1,7 milljarða ef við tökum út fyrir sviga peninginn sem er millifærður af gjaldahliðinni vegna rafbílaívilnunar, 1,5 milljarða lækkun á beinum framlögum. Stuðningur við rafbíla mun þar að auki lækka um 4,8 milljarða vegna þess að peningurinn sem er millifærður er þetta mikið lægri en hann var á gjaldahliðinni. Samanlagt er verið að taka málaflokkinn niður um 6,5 milljarða. Á sama tíma og ríkisstjórnin stendur fyrir aðgerðum sem auka losun ár frá ári er hún að draga úr beinum stuðningi við aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Ef við bætum síðan ofan á þetta þeirri nýju gjaldtöku sem verður á notkun rafbíla, sem mætti alveg flokka sem gjaldtöku sem vinnur gegn grænum umskiptum þótt ekki sé hún endilega ósanngjörn eða óréttlát, bætast þar við u.þ.b. 6,2 milljarðar. Samanlagt er verið að rifa seglin um rúma 12 milljarða. Á sama tíma birtist þingmálaskrá frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem hann treystir sér (Forseti hringir.) ekki einu sinni lengur til að leggja fram frumvarp um að banna olíuleit í landi sem aldrei hefur borað eftir olíu.

Frú forseti. Við þurfum að taka á þessu stjórnleysi ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.) Sú tillaga sem við ræðum hér er eitt af verkfærunum til þess.