154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

réttlát græn umskipti.

3. mál
[15:03]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek það líka fram þegar ég er að ræða um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu að þá á ég auðvitað við allt höfuðborgarsvæðið en ég á líka við Reykjanesbæ, Selfoss og Akranes sem mynda svona sameiginlegt atvinnusvæði. Það er auðvitað alveg rétt að Reykjavík og höfuðborgarsvæðið allt eru ekkert sérstaklega vinveitt almenningssamgöngum eins og það er í dag og skipulagið hefur ekki ýtt undir þá þróun, ólíkt dæmum sem hv. þingmaður nefndi frá Kaupmannahöfn og Ósló. Fyrir því eru ósköp einfaldar skýringar, einfaldlega vegna þess að höfuðborgin okkar er svo ný. Kaupmannahöfn og Ósló byggðust fyrir nokkrum öldum og byggðust einmitt á hugmyndafræði hinnar evrópsku þéttu borgar þar sem þú varst með blandaða landnotkun, þar sem fólk bjó á annarri, þriðju og fjórðu hæð en á jarðhæðinni voru þjónustan og atvinnan fyrir bara næsta götuhorn. Inn í þetta umhverfi byggðust almenningssamgöngurnar á 19. öld sem héldu svo utan um borgina. Reykjavík, og svo ég tali nú ekki um sveitarfélögin þar í kring, byggist þegar áhrif módernisma og bílisma eru orðin svo sterk og byggist á þessu líkani sem ég talaði um áðan, um flokkun og aðgreiningu. Verkefnið er einfaldlega að vinda ofan af því. Stjórnvöld á höfuðborgarsvæðinu hafa verið að gera það með þessum þéttingarreitum sínum. Þetta er ekki eitthvað sem er hrist fram úr erminni. Þetta gerist ekki á næsta ári eða þarnæsta, þetta gerist á áratugum, en á endanum mun þetta vera fýsilegur kostur til að ferðast á milli og ég lýsi því aftur yfir: Þetta er eina leiðin fram á við og þetta er í rauninni skilvirkasta leið okkar til að ná loftslagsmarkmiðum okkar, að vinna að þessu þar sem meginþorri landsmanna býr.