réttlát græn umskipti.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tel að grundvöllur fyrir sterkari almenningssamgöngum — segjum að við myndum þétta net strætisvagnasamgangna, hafa sérakreinar og slíkt. Ég held að ásókn í almenningssamgöngur myndi ekkert endilega aukast svo mikið þar sem grunnurinn er ekki til staðar. Við erum með draum hér á Íslandi og á höfuðborgarsvæðinu um evrópska, þéttbyggða borg sem var byggð á öðrum tímum en Reykjavík var byggð. Reykjavík er bara miklu yngri borg en þessar borgir í Evrópu. Við erum með þann draum að vera alveg eins borg en við erum bara skipulögð allt öðruvísi. Við erum með þessa aðgreiningu eins og hv. þingmaður kom inn á. Svo ætlum við að tala um almenningssamgöngur með sama hætti og er í þessum borgum. Grunnurinn er ekki til staðar þar sem borgin er miklu dreifðari þannig að við munum alltaf þurfa að gera einkabílnum hátt undir höfði. Ég get ekki séð að við getum haft almenningssamgöngur eins og þær eru í Ósló eða Kaupmannahöfn. Við erum einfaldlega miklu dreifbýlli borg. Það er nú bara þannig. Þannig að við verðum alltaf að passa að gera einkasamgöngum hátt undir höfði líka. Ég held að samgöngur á höfuðborgarsvæðinu séu komnar í algjört óefni. Maður sér það bara í þessari litlu borg að akandi — ég var einu sinni að vinna hjá Isavia og það tók mig 50 mínútur að keyra frá Loftleiðahótelinu í Fossvoginn, bíðandi í bifreið allan tímann. Það gerist líka núna á hverjum morgni hjá þúsundum einstaklinga og kostnaðurinn við það er gígantískur, ég veit það. Ég er ekki að segja að ég sé algerlega á móti almenningssamgöngum en hver er lausnin? Ég held að við séum komin í miklar ógöngur út af grunnskipulagi borgarinnar sem er nánast ekki hægt að vinda ofan af, því miður. Skipulagið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið lóðaúthlutun, það er bíll, hús í miðjunni og bílastæði í kring. Ég hef séð Borgartúnið, nýtt hverfi sem átti að verða einhvers konar miðborg — algjört klúður. Þetta er hverfi sem er byggt upp síðustu 15 ár raunverulega.