154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

skattleysi launatekna undir 400.000 kr.

4. mál
[15:31]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir síðara andsvar. Hann vísar hér í 62. gr. almannatryggingalaga, fyrrverandi 69. gr., og segir að við ættum nú kannski að fylgja betur gildandi lögum í landinu en hv. þingmaður veit mætavel að þessi grein hefur verið þverbrotin alla tíð. Það hefur í engu verið tryggt að henni sé framfylgt. Kjaragliðnunin og launabilið hefur vaxið jafnt og þétt í boði stjórnvalda. Það sem þessi þingsályktunartillaga okkar er að gera er þó að reyna að tryggja lágmarksgrunnframfærslu þrátt fyrir öll þessi lögbrot sem eru framin á þessum þjóðfélagshópi. Ég veit eiginlega ekki hvernig við eigum að fara að því öðruvísi. Ef þessum lögum hefði t.d. verið fylgt, þessari 62. gr. núverandi, fyrrverandi 69. gr. almannatryggingalaga, þá væri fólk sennilega að fá útborgað um 400.000 kr. á mánuði, það er ekkert flóknara en það, alveg eins og ef vísitölu hefði verið fylgt með persónuafsláttinn sem hefur ekki heldur verið látinn fylgja vísitölu. Það hefur í rauninni lítið verið gert frá hruni til þess að leiðrétta og bæta kjör þessa þjóðfélagshóps sem höllustum fæti stendur í samfélaginu. En ég efast ekkert um að ef þetta mál kæmi, ef svo furðulega vildi til að það kæmi til atkvæðagreiðslu, þá efast ég ekkert um að vinir okkar í Pírötum myndu styðja málið. Ég efast ekkert um það. Ég hefði samt sem áður viljað sjá einhvern með okkur á málinu. Það hefði óneitanlega glatt mig rosalega mikið.