útlendingar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir andsvarið. Það kemur auðvitað fram, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, að þau sem eru samvinnufús til brottfarar eru enn í þjónustunni en þau sem teljast ekki vera samvinnufús enda á götunni samkvæmt 30 daga reglunni. Þá spyr ég á móti: Ef einstaklingurinn er t.d. fórnarlamb mansals, ef einstaklingurinn er tvítugur maður sem kom hér þegar hann var unglingur og á að senda til lands sem hann hefur aldrei búið í, hvert er þá valið? Við verðum að hafa skilning á aðstæðum fólksins. Við verðum að hafa skilning á aðstæðum þeirra sem geta ekki farið til baka af því að þau dæmi eru til. Þau dæmi eru sannarlega til. Ég man bara eftir einu dæmi sem ég heyrði af síðastliðið haust, það var kona að ég held frá Rússlandi. Hún var að sækja hér um alþjóðlega vernd og hún hafði farið til spænsks ræðismanns af því að það er á Schengen-svæðinu og fengið áritun og þegar hún fékk neitun á Íslandi þá átti að senda hana til Spánar af því að það var einhver stimpill en hún hafði aldrei komið þangað og hafði engan áhuga á að fara þangað. Það eru þessar aðstæður sem við verðum að horfast í augu við. Stefna Samfylkingarinnar er að við tökum á móti öllum þeim sem við getum veitt alþjóðlega vernd. Það er mjög mikilvægt að það komi fram hér. Og af því að ég hef stundum heyrt ýjað að því í þessum sal þá er stefna Samfylkingarinnar ekki að það sé enginn lagarammi eða engar reglur sem gilda. En við erum hins vegar sammála mati frændþjóða okkar að við búum ekki til heimilisleysi með svona reglum. Það er rangt. Við eigum ekki að gera það.