154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

útlendingar.

113. mál
[17:20]
Horfa

Flm. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ræðuna en vil byrja á að árétta það, og valda hv. þingmanni kannski vonbrigðum, að ákvæðið sem við vorum að innleiða og ég legg til að verði fellt brott úr lögunum er séríslenskt. Þetta er ekki eins og á öðrum Norðurlöndum, ekki einu sinni í Danmörku sem er álitin eitt harðneskjulegasta Norðurlandaríkið í garð flóttafólks. Í Danmörku er fólk aldrei á neinum tímapunkti, aldrei, svipt allri þjónustu. Ekki nóg með það heldur býr fólk þar, eins og ég nefndi í ræðu minni áðan, árum og áratugum saman á fullu fæði og í húsnæði, gengur í skóla og stundar jafnvel atvinnu, sannarlega í sérstökum búsetuúrræðum með takmörkunum eins og það er kallað, einhvers konar opnum stofufangelsum. En það kerfi sem við vorum að setja á með þessu ákvæði er séríslenskt. Þetta er hvergi annars staðar gert eins og við gerðum það.

Spurningin sem mig langar að beina til hv. þingmanns er þessi: Gefum okkur að við séum sammála um að það þurfi að gera eitthvað, það sé hræðilegt að fólk sé hérna sem eigi ekki rétt á að vera hér og það þurfi bara að gjöra svo vel að fara heim til sín. Erum við þá ekki að fara öfugt að þessu? Hefðum við ekki átt að byrja á því að búa til þetta búsetuúrræði með takmörkunum og svipta fólk síðan þeirri þjónustu sem það hefur í dag, í stað þess að gera það allslaust? Einstaklingar og hjálparsamtök úti í bæ gera það að verkum að við sjáum þau ekki deyjandi úr hungri á Austurvelli, annars væru þau það. (Forseti hringir.) Fólk hefur ekki einu sinni aðgang að heilbrigðisþjónustu og er að fá synjun um heilbrigðisþjónustu. Erum við ekki að fara öfugt að þessu, hv. þingmaður?