útlendingar.
Forseti. Ég endurtek það sem ég sagði áðan: Þrátt fyrir að fjölskyldum sé veitt undanþága og annað slíkt, en undir undanþágur falla t.d. ekki fórnarlömb mansals sem eru í einna mestri hættu á að lenda í ofbeldi og misneytingu á götunni — þau eru ekki undanþegin þjónustusviptingunni af því að þau eru ekki samstarfsfús um að komast aftur í mansal í Nígeríu, þá geta þau bara farið í mansal á Íslandi; þannig er kerfið sem við erum að byggja upp — þá er þetta séríslenskt, hv. þingmaður. Þetta eru séríslenskar reglur. Þar sem hv. þingmaður er á þeirri skoðun að við ættum ekki að vera með séríslenskar reglur þá ætti hún að samþykkja þetta frumvarp sem ég er að leggja fram hér um afnám þessarar sérreglu. Þetta er hvergi gert svona. Í umræðum um þetta var ítrekað sagt af hálfu hv. þingmanns og annarra: Eru þau sem eru á móti þessu að meina að önnur ríki séu að brjóta mannréttindasamninga? Nei, því að þau eru ekki að gera þetta. Það er enginn að gera það sem við erum að gera með þessu ákvæði, enginn.
Ég ítreka spurningu mína til hv. þingmanns: Eruð þið ekki að gera þetta í öfugri röð? Og ég segi þið, ekki við.