154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

útlendingar.

113. mál
[17:33]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi þessa 9. mgr. 33. gr. um að fólk missi alla þjónustu eftir 30 daga þegar búið er að synja því, þá er sagt: Nei, þau fá þjónustu ef þau vinna með íslenskum stjórnvöldum. Það var ekki þannig í hollenska málinu. Dómstóllinn sagði einfaldlega: Þetta er ekki brot af því að það er boðið upp á lokað búsetuúrræði. Það var það sem dómurinn sagði. Það var boðið upp á þjónustu. Hann sagði ekki: Sveitarfélögin í Hollandi geta tekið á móti fólkinu. Það var ekki það sem hann sagði. Og það var það sem ég spurði um áðan: Af hverju var ekki talað við sveitarfélögin um þetta áður en lögin voru samþykkt? Ég get ekki annað séð en að það sé réttarágreiningur í landinu milli ríkisvaldsins og sveitarfélaga sem þarf að leysa úr fyrir dómstólum og ég hallast að skoðun sveitarfélaga varðandi túlkun á 15. gr. laga um félagslega þjónustu. Það er önnur saga. En þessi sátt 2016, er bara sátt sem ég botna hreinlega ekkert í. Þú þarft ekki tvær regnhlífar ef það rignir úti. Þú þarft bara alþjóðlega vernd einu sinni. Ef þig langar að koma til Íslands en ert kominn með alþjóðlega vernd í ríki eins og Grikklandi þá sækir þú um dvalarleyfi á Íslandi. Svo einfalt er það. En nei, Ísland þarf að íþyngja umsóknarkerfinu með því að einstaklingar geta sótt aftur um alþjóðlega vernd og kannski fengið neitun. En það virðist vera þannig að ýmsir flokkar hér á þingi telji að ef þú færð neitun um alþjóðlega vernd þá eigir þú bara að fá dvalarleyfi. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni, það gerir allt þetta kerfi bara marklaust, algjörlega. En það breytir því ekki að frumvarpið í vor, það sýna frumvörp núna á þingmálaskrá, var ófullnægjandi. Það var ekki staðið rétt að verki. Núna erum við sennilega að fara að horfa á mál sem endar í Hæstarétti og sennilega í Strassborg með það fólk sem mun ekki fá lokað búsetuúrræði eða þjónustu. Ég spái því að það muni fara fyrir dómstóla, til Íslandsdeildarinnar í Strassborg. Af nógu er að taka þar. En það sem mér finnst vera í þessu er að það virðist vera þingmeirihluti fyrir því að koma skikki á þessi mál. Það virðist vera að Sjálfstæðisflokkurinn, þetta er á ábyrgð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins líka, láti stjórnast af öðrum hagsmunum en þeim hvað er gott fyrir íslenskt samfélag í þessu máli. (Forseti hringir.) Þeir vilja halda í völdin með VG og það er VG sem kemur í veg fyrir að það verði gerð almennileg gangskör í þessu máli. Þess vegna sitjum við uppi með þetta mál aftur á þessu þingi.