154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

útlendingar.

113. mál
[17:48]
Horfa

Flm. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir andsvarið og fyrir spurningarnar sem eru allar mjög góðar. Það virðist ekki skipta máli hversu oft þeim er svarað, þær koma upp aftur þannig að ég fagna því að fá bara enn eitt tækifærið til að svara þeim.

Ég tek svolítið undir með hv. þingmanni að við Píratar höfum á liðnu ári verið svolítið reaktíf í þessari umræðu. Við höfum verið svo upptekin við að reyna að koma í veg fyrir einhver óskapaskemmdarverk þessarar ríkisstjórnar á kerfinu að við höfum í rauninni ekkert verið að tala um það hvernig við sjáum hlutina fyrir okkur, hvað við viljum gera þetta. Ég get glatt hv. þingmann með því að þessu munum við breyta í vetur vegna þess að þegar hv. ríkisstjórnin er komin á sjálfseyðingarstýringu þá getum við kannski svolítið einbeitt okkur að því að kynna okkar sýn og við munum gera það.

Mér finnst alltaf svolítið áhugavert að hv. þingmaður segist lesa úr athugasemdum okkar við það að það eigi að henda fólki út á götuna, þannig að við séum með einhverja „open borders“-stefnu. Ég á svo ákaflega erfitt með að sjá samhengi þar á milli. Það sem mig langar hins vegar að segja varðandi það er að Ísland er ekki eyland í heiminum. Ísland er þátttakandi í alls kyns alþjóðasamstarfi. Ég er ekki ofarlega á lista í því að tala gegn flestu af því samstarfi sem við erum í og ég er mjög hlynnt alþjóðlegu samstarfi. Það hvort við ætlum að opna hérna landamærin þá erum við í fyrsta lagi með opin landamæri. Við erum með opin landamæri sem heimila 500 milljón manns að koma hingað án þess að spyrja kóng eða prest. Þar er ekkert umsóknarferli og koma mörg þúsund manns hingað á hverju ári á grundvelli þeirra opnu landamæra.

Við erum ekkert að leggja til nein opnari landamæri enda getum við ekki gert það vegna þess að við erum hluti af alþjóðasamstarfi sem býður ekki upp á það. Ef það á að fara í að opna landamæri eitthvað umfram það sem er, þau eru mjög opin, þá er það eitthvað sem þarf að ræða á alþjóðavettvangi en ekki hér á hinu annars ágætlega háa Alþingi. — Ég er því miður runnin út á tíma en ég get haldið áfram í seinna svari mínu.