154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

186. mál
[18:13]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég nefndi hér orðið orðhengilshátt í minni ræðu áðan. Það er verið að benda á að ef við greiðum ekki þjóðaratkvæði um þetta mál hvort það sé þá ekki bara um allt. Við getum tekið þessa umræðu. Þetta mál er hins vegar í sjálfheldu að mínu mati. Það er ekki búið að draga formlega til baka aðildarviðræðurnar sem þingið samþykkti árið 2009. Það er alveg ljóst að þáverandi meirihlutaflokkar 2013–2016 treystu sér ekki til að fara í gegnum þingið af því að þeir treystu því ekki að það yrðu ekki bara allt að því óeirðir hér úti af því að það var alveg skýr þjóðarvilji með undirskriftasöfnuninni.

Ég held að þetta væri líka ágætisspurning sem hv. þingmaður gæti beint m.a. til síns formanns sem var á tillögu með mér í júlí 2009 um það að halda þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann var greinilega sömu skoðunar og ég að það væri hægt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um stór og mikil mál sem varða mjög víðtæka hagsmuni þjóðarinnar, sem snerta mannréttindi, efnahagsmál, varnir og öryggi og það hver staða Íslands er í heiminum.

Ég held að ef við hefðum staðið frammi fyrir því í dag að ganga í NATO, sem var gríðarlega mikilvægt skref á sínum tíma, ég held að það væri mál sem fólk hefði talað um í dag að það ætti að greiða atkvæði um meðal þjóðarinnar. Ég held að stjórnmálafólk í dag hefði átt að treysta sér í þá leið. Tíminn var annar, tíðin var önnur á þeim tíma. En þetta er dæmi um það hvernig tímarnir geta breyst. Ég er á því að öll nálgun m.a. þingmanna Sjálfstæðisflokksins í þessu máli er alltaf til að stoppa málið, til að tempra málið, gera það tortryggilegt, gera lítið úr því, reyna að fá fólk til að hlæja að einhverjum aukasetningum að mínu mati með einhverjum misskildum húmor. Þannig að þetta mál í mínum huga, enda er þetta fyrsta málið sem Viðreisn leggur fram, er það risastórt að við teljum út frá efnahagslegum forsendum, eins og ég segi, öryggislegum lífsgæðaspursmálum mikilvægt að þjóðin sjálf fái valkost þannig að hún fái að ráða meira sínum málum í samfélaginu, hvort sem við erum hér eða annars staðar.