154. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2023.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

186. mál
[18:29]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Það er með nokkurri gleði að ég kem hér í ræðupúltið til að taka til máls um þessa ágætu tillögu þar sem ég er meðflutningsmaður ásamt fleiri þingmönnum Samfylkingarinnar. Tillagan er, eins og hér hefur komið fram í máli hv. fyrsta flutningsmanns, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, að það verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Fyrst kannski aðeins í tilefni þeirra orðaskipta sem hér hafa átt sér stað um þjóðaratkvæðagreiðslur. Það er það auðvitað bara þannig að í öllum lýðræðisríkjum, í flestum lýðræðisríkjum ef ekki bara öllum, er stuðst við svokallað fulltrúalýðræði, þ.e. fólkið kýs fulltrúa sína á þing en fulltrúalýðræði hefur aldrei útilokað þjóðaratkvæðagreiðslur. Um það eru mýmörg dæmi um allan heim og þarf svo sem ekki að fara langt yfir skammt.

Það má kannski rifja hér upp til gamans að á fyrri hluta síðustu aldar voru íslenskir stjórnmálamenn bara tiltölulega duglegir að efna til þjóðaratkvæðagreiðslna. Þeir gerðu það árið 1908 um áfengisbannið, 1916 um þegnskylduvinnu, 1918 um setningu sambandslaganna, afar mikilvæg breyting á stöðu Íslands, og aftur um brennivínið árið 1933 og árið 1944 um afnám sambandslaganna og um setningu nýrrar stjórnarskrár. Ég held að við sem eitthvað höfum lesið í sögu Íslands eða höfum á annað borð áhuga á stjórnmálasögu Íslands vitum hvers konar átök voru hér í þessum sal á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar, hvers konar átök það voru. En það hvarflaði ekki að nokkrum manni að efna ekki til þjóðaratkvæðagreiðslu um grundvallarhagsmuni íslenskrar þjóðar, grundvallarhagsmuni.

Okkur getur fundist allt og ekkert um aðild Íslands að Evrópusambandinu hugsanlega, stöðu Íslands í samfélagi þjóða. En við getum ekki deilt um það hér í þessum sal að það sé ekki um grundvallarmál að ræða. Þetta varðar stöðu Íslands sem sjálfstæðs ríkis í samfélagi þjóðanna og stöðu okkar innan Evrópu og stöðu okkar sem fullvalda þjóðar og hvernig við ætlum í fyrsta lagi að verja það fullveldi í samstarfi við aðrar önnur ríki og einnig og ekki síður að efla hér bæði velsæld og þjóðarhag og hagvöxt með því að vera í nánara samstarfi á markaði í Evrópu og með öðrum hætti líka. Hef ég þá lokið pistli mínum um þjóðaratkvæðagreiðslur, af því að þetta fór nú allt að snúast um gildi þeirra og hvort þær ættu bara beinlínis við. Kannski á það rætur að rekja til innanflokksdeilna í Sjálfstæðisflokknum sem síðar urðu til þess að Viðreisn var stofnuð, ég veit ekkert um það, en hér er fólk sem þekkir það betur en ég.

Hæstv. forseti. Þá er kannski rétt að rifja það upp að ég ásamt hv. fyrsta flutningsmanni, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, og reyndar hæstv. forseta, ef ég man rétt, og hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur sem eru núna í þessum sal, sátum öll á þingi árið 2009 og munum kannski um hvað það snerist. Hér var flutt tillaga um að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hún var auðvitað að einhverju leyti flutt til þess að gefa Íslendingum von um bjarta framtíð að loknu bankahruni og algjöru rofi á trausti fólks á samfélagsbyggingunni og trausti fólks til stjórnmálanna. Það var kannski ekki bara af því að við ætluðum að sækja traustið til útlanda heldur vegna þess að við vildum, og ég vil og Samfylkingin vill, stefna til nánara Evrópusamstarfs, helst með aðild að Evrópusambandinu. Ég var sumarið 2009 svo borubrött að ég taldi ekki þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu vegna þess að það var svo drjúgur meiri hluti fyrir tillögunni á Alþingi.

Það er of langt mál að fara að rifja upp allt sem gerðist það sumar í þeirri umræðu og hvernig málið svo fór í framhaldinu. En auðvitað hefði það byggt miklu fastari grunn fyrir okkur til að standa á ef meiri hlutinn þá hefði brotið odd af oflæti sínu og sagt: Jú, auðvitað förum við með málið í þjóðaratkvæðagreiðslu, fáum allsherjarsamstöðu um það, sem skoðanakannanir þá bentu til, um þessa umsókn og byggjum hana á föstum pólitískum grunni og með stuðningi meiri hluta þjóðarinnar. Sumarið 2009, ef ég man rétt, var stuðningurinn við að sækja um aðild og við aðild, held ég, 70%, ef ég man rétt, líklega aldrei verið hærri. En þannig fór um þá sögu.

Ég held að þessi tillaga sé svo mikilvæg núna einmitt til að taka málið úr þessari pólitísku sjálfheldu sem það hefur verið í allt of lengi. Auðvitað er það þannig að þingsályktunartillagan sem var samþykkt hér árið 2009 er í fullu gildi, hún hefur aldrei verið dregin til baka. En hér hafa hins vegar ríkisstjórnir sem tóku við eftir 2013 ákveðið að láta sem hún væri ekki til og beitt svona, hvað eigum við að segja, vafasömum bréfaskrifum til Brussel og ýmsu öðru til að reyna að telja fólki trú um að aðildarviðræðunum hafi verið slitið.

Við höfum á þessum tíma og íslenskt samfélag þróast kannski ekki beinlínis í þá átt sem sum okkar höfðu kosið sumarið 2009 og auðvitað hefur Evrópusambandið stækkað og þróast mjög mikið og vettvangur Evrópusamstarfsins er ekki sá sami og hann var fyrir 20, 30 árum, hvað þá ef við förum lengra aftur í tímann. Ég var þegar þeirrar skoðunar eftir að við gengum í EES, sem ég held að við séum öll sammála um að hafi verið eitt stærsta og örlagaríkasta gæfuspor sem tekið hefur verið fyrir íslenskt samfélag, að það væri fordyrið að aðild að Evrópusambandinu. Síðan eru reyndar liðin nokkur ár og mér hefur því miður ekki orðið að ósk minni um fulla aðild Íslands að Evrópusambandinu, en þannig er það.

Við höfum hins vegar gerst aðilar að Schengen. Við erum í innra starfi Evrópusambandsins mjög víða. Við erum vonandi öll sammála um hið upphaflega erindi Evrópusambandsins um að stuðla að friði og öryggi í álfunni eftir einhvern mesta hildarleik sögunnar og að við gerum það með nánu samstarfi, með frjálsum viðskiptum, með frjálsri för og við byggjum það á lýðræðislegum gildum. Allt þetta stemmir enn þá, allt þetta er í raun og veru jafn gilt og eiginlega enn mikilvægara í ljósi þess að nú er stríð í Evrópu en það var kannski fyrir 15 árum. Þess vegna kem ég hér upp til að ítreka stuðning minn við það að þetta sjálfsagða skref verði tekið, að kjósendum hér á landi verði boðið að taka afstöðu til þess hvort þau vilja halda áfram viðræðum við Evrópusambandið eða ekki. Að lokinni slíkri atkvæðagreiðslu, hvernig sem hún færi, er það auðvitað líka skylda stjórnmálafólks og stjórnmálaflokka að virða þá niðurstöðu hver sem hún verður. Þá reynir á pólitíska þrekið. En leyfum fyrst fólkinu í landinu að taka þessa ákvörðun um grundvallarstöðu Íslands í samfélagi þjóða, rétt eins og við höfum leyft fólki að taka þessar ákvarðanir í gegnum íslenska stjórnmálasögu síðastliðin 120 ár eða svo, alla vega frá því að fyrsti ráðherrann kom í landið.