þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur fyrir sköruglega ræðu, efnismikla og mjög góða. Það var mjög fínt að fá þennan fyrirlestur um þjóðaratkvæðagreiðslur og þær fullyrðingar sem hér komu fram áður um það að ef það væru þjóðaratkvæðagreiðslur haldnar í stórum málum þá værum við einhvern veginn að gefa fulltrúalýðræðið upp á bátinn. En það er kannski ekki það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann um, heldur meira þetta sem aðeins var farið yfir í ræðunni. Það er þetta sem gerðist árið 2009 þegar ákveðið var að sækja um aðild að Evrópusambandinu og hv. þingmaður fór mjög vel yfir það hvers konar andrúmsloft ríkti í samfélaginu þá. Við sáum það á skoðanakönnunum strax upp úr hruni að afstaða fólks gerbreyttist til Evrópusambandsins. Menn voru tilbúnir til að skoða það jákvæðari augum þá heldur en hafði verið á árunum fyrir hrun. Það var mjög auðmælanlegt og auðsjáanlegt í öllum könnunum sem birtar voru. Ég man líka, þá ekki á þingi heldur bara úr fjölmiðlum verandi að fylgjast með þessu máli þá, að það var mikið rætt um það hvort það ætti að leita liðsinni þjóðarinnar og spyrja hana hvort það ætti að fara í vegferðina eða ekki og svo sem eins og hv. þingmaður kom inn á þá var nú meiri hluti fyrir því að gera það þannig þó að sú leið hafi síðan ekki orðið ofan á.
En mig langaði að spyrja hv. þingmann, vegna þess að mönnum hefur verið mjög tíðrætt um það að það var ekki farið í þjóðaratkvæðagreiðslu áður en farið var í viðræðurnar: Að hvaða leyti veikti það ferlið? Menn hafa talað mikið um það í framhaldinu að þetta hafi veikt aðildarferlið. Mig langar að fá það bara úr þessum ræðustól í þessa umræðu hér vegna þess að það skiptir máli, að hvaða leyti það veikti ferlið, og það væri mjög forvitnilegt að fá einhverja yfirferð frá hv. þingmanni um það.